fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Hörmungar Anthony Martial halda áfram

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 8. júní 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Martial hefur yfirgefið Monterrey eftir að samningi hans við félagið var rift fyrir tímann.

Franski framherjinn, sem er 30 ára, gekk til liðs við Monterrey í september á síðasta ári en dvöl hans þar varð skammvinn og vonbrigðum blandin. Hann skoraði aðeins eitt mark og lagði upp þrjú í 20 leikjum áður en ákveðið var að slíta samstarfinu.

Tímabil Martial í Mexíkó einkenndist einnig af meiðslum, en hann fór af velli á börum eftir axlarmeiðsli fyrr á árinu. Þá komu upp agavandamál þegar hann sýndi óánægju með að sitja á varamannabekk í leik gegn Chivas, sem leiddi til þess að hann var settur til hliðar frá æfingum liðsins.

Ferill Martial hefur verið sveiflukenndur undanfarin ár, en hann sló í gegn með Manchester United eftir komu sína þangað 2015.

Nú er framtíð hans enn á ný í óvissu eftir enn eitt vonbrigðatímabilið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Myndband: Stelpurnar okkar fóru á kostum í umferðinni – „Fólk er farið að flauta, slakiði á“

Myndband: Stelpurnar okkar fóru á kostum í umferðinni – „Fólk er farið að flauta, slakiði á“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Telur að þetta lið gæti komið öllum á óvart á HM

Telur að þetta lið gæti komið öllum á óvart á HM
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leikmann hafi verið með Frey í liði fyrir brottreksturinn

Leikmann hafi verið með Frey í liði fyrir brottreksturinn