
Hopp leigubílar hófu formlega að veita leigubílaþjónustu í dag. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að nú hafi 50 leigubílstjórar skráð sig til að aka undir merkjum fyrirtækisins og geta þeir samanlagt ekið um eitt þúsund ferðir með farþega á sólarhring. Búist er við að bílstjórunum hjá Hopp muni halda áfram að fjölga á næstunni og að fleiri nýti leigubíla en áður. Um 300 þúsund manns hafa hlaðið niður Hopp-appinu og geta nú valið um að taka rafskútu, deilibíl eða verið sótt á leigubíl. Þau munu geta séð nákvæmlega hvar leigubíllinn er staddur á leið sinni að sækja þau, hvað er langt í að hann komi og hvað ferðin kostar. Leigubílstjórar sem keyra fyrir Hopp geta afgreitt fleiri ferðir vegna minni tíma sem fer í að ganga frá greiðslu og vegna snjallari tækni við að para þá saman við farþega.
Einn af farþegum Hopp í dag var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem pantaði bíl frá skrifstofu Landspítala í Skaftahlíð, þar sem hún hafði nýlokið undirritun samnings um fjölgun heilbrigðismenntaðra, yfir í Laugardal. Þar vinnur Hopp nú að því, í samstarfi við KSÍ, að merkja stæði fyrir rafskútur fyrirtækisins, í aðdraganda tveggja landsleikja sem fram fara á Laugardalsvelli á næstu dögum. Til að hvetja fólk til að skilja bílinn eftir heima og hoppa frekar á rafskútu á leikinn, munu öll þau sem taka Hopp-hjól á leikinn og leggja á þessu sérmerkta svæði fá afslátt af fargjaldinu. Áslaug sagði eftir ferðina í Laugardalinn að hún fagnaði auknu frelsi á leigubílamarkaði og að samkeppni sé ávallt til góðs.
Leigubílaþjónusta Hopp hefur verið í undirbúningi síðustu mánuði eftir að Alþingi breytti lögum um leigubílaþjónustu. Breytingarnar voru gerðar í kjölfar ábendingar frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, og með þeim var stöðvarskyldan hér á landi afnumin. Sitt sýndist hverjum um þær breytingar og mótmæltu leigubílstjórar áformunum harðlega.
„Markmið Hopp er að vera eina appið sem þú leitar til þegar þú þarft að komast frá A til B. Við viljum gera fólki auðveldar fyrir að deila heldur en að eiga. Bíll er sjaldan rétt lausn, en þegar hans er þörf er bíll sem þú deilir með fleirum alltaf betri en einkabíll. Það hefur vantað meira framboð af leigubílum, fleiri ferðir á virkum dögum og fleiri bílstjóra á álagstímum. Hjá okkur greiða leigubílstjórar engin stöðvargjöld heldur aðeins þjónustugjöld. Við bjóðum öll velkomin að slást í hópinn. Þú mátt keyra fyrir okkur og aðra á sama tíma. Þannig nýtir þú betur vinnutímann og fjárfestinguna sem liggur í bílnum,“ er haft eftir Sæunni Ósk Unnsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Hopp leigubíla.
—
Hvernig virkar þetta?
Hopp appið finnur bestu leiðina og hagkvæmustu ferðina. Báðir aðilar, bílstjórinn og notandinn samþykkja eða hafna ferðinni sem appið býður upp á. Verðið byggist á framboði og eftirspurn. Bílstjóri velur sjálfur hvenær hentar honum að keyra í Hopp appinu og getur því keyrt eins mikið eða lítið og honum sýnist. Báðir aðilar geta gefið hvor öðrum einkunn til að tryggja gæði. Farþegar vita alltaf hvaða bílstjóri ók þeim og eru með allar upplýsingar um ferðirnar sínar í appinu.
Hver getur keyrt fyrir Hopp?
Öll þau sem eru með tilskilin leyfi frá Samgöngustofu geta keyrt leigubíl fyrir Hopp. Fyrirtækið tengist gagnagrunni Samgöngustofu og getur því tryggt að einungis bílstjórar með réttindi keyri leigubílana. Hopp gerir hvorki kröfu um binditíma né stöðvargjald heldur tekur fyrirtækið fasta prósentu af ferðunum. Allar ferðir eru greiddar fyrirfram í Hopp-appinu sem eykur þægindi og kemur ökumanninum hraðar í næstu ferð.