

Grindavík leiðir einvígið, 2-0, eftir þriggja stiga sigur í spennuþrungnum leik á Sauðárkróki. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari og stendur Grindavík því vel að vígi fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer í Grindavík á föstudagskvöld.
Töluverð umræða hefur skapast um hegðun leikmanns Grindavíkur, DeAndre Kane, eftir að hann sendi stuðningsmönnum Tindastóls fingurinn í leikslok. Atvikið náðist á myndband og hefur fjörug umræða skapast í Facebook-hópnum Bónus-spjallið.
„Hélt að leikmenn ættu að vera fyrirmynd stuðningsmanna ef þetta er fyrirmynd Grindavíkur er það mjög til skammar og slæmt fyrir komandi framtíð… hélt að körfubolti væri fjölskylduskemmtun,” segir til dæmis í einu innleggi. Margir taka undir þetta:
„Mjög ljótt af honum að gera þetta,“ segir einn og annar segir: „Algjör trúður.“
Stuðningsmenn Grindavíkur hafa komið sínum manni til varnar og benda sumir á að stuðningsmenn Tindastóls hafi ekki verið barnanna bestir. „Hefur einhver sagt eitthvað við alla þá upp í í stúku sem gefa liðum puttann,“ spurði einn. „Öllu er hægt að væla yfir, Jesús Kristur,“ segir svo í annarri athugasemd.
Meira að segja handboltamarkmaðurinn og landsliðsmaðurinn Björgvin Páll Gústavsson blandaði sér í umræðuna með sérstöku innleggi. Þar gagnrýndi hann sérfræðing Sýnar fyrir að gera lítið úr atvikinu.
Björgvin tók fram að hann elski að horfa á körfubolta og elski að horfa á DeAndre Kane enda litríkur og skemmtilegur karakter, en umfram allt frábær körfuboltamaður.
„En hérna finnst mér menn vera á villigötum. Einn stærsti prófíllinn í íslenskum körfubolta ákveður að senda fokkjúmerki uppí stúku og einn sérfræðingur þáttarins talar um í þessu samhengi að „menn mega ekki missa sjónar á því sem skipti mestu máli, það er að vinna körfuboltaleikina…”
Björgvin segir að fyrir hans smekk sé margt mikilvægara en að vinna íþróttaleiki.
„Fyrir mér er líka mikill munur á því að vera erfiður eða með stæla inni á vellinum og að senda fokkjúmerki upp í stúku í átt að fólki á aldrinum 3-83 ára. Leikmenn eru fyrirmyndir og leikmenn gera mistök en þegar þeir sem fjalla um sportið eru farnir að nánast samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna með því að færa fókusinn á hitt liðið þá er kominn tími á að bakka eitt skref. Meiri standard og fagmennsku takk.”
Margir tóku undir með Björgvini. „Nákvæmlega, sérfræðingarnir verða að hugsa áður en þeir tala stundum,“ sagði til dæmis einn.