fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Pressan

Dæmd til greiðslu sektar fyrir að gefa öndum brauð

Pressan
Þriðjudaginn 7. febrúar 2023 20:00

Það reyndist dýrt að gefa öndunum brauð í Kent

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enskur ellilífeyrisþegi,  Susan Watson, var á dögunum gert að greiða  sekt fyrir að dreifa rusli á almannafæri. Það væri ekki frá sögu færandi nema fyrir þá staðreynd að hið meinta rusl sem Watson, sem er 68 ára gömul, dreifði var brauð sem ætlað var öndum sem voru á svamli í á sem liggur í gegnum bæinn.

Daily Mail greinir frá þessu en atvikið átti sér stað í bænum Tonbridge í Kent-sýslu í Suðaustur-Englandi. Watson hefur verið búsett í bænum í tvo áratugi og var á röltinu við árbakkann. Hún var með brauðsneið meðferðis og braut hana niður í smærri bita og henti til fuglanna. Henni var talsvert brugðið þegar bæjarstarfsmaður kom hlaupandi á eftir henni, sagði henni að hún hefði brotið gegn reglugerðum bæjarins og sektaði hana um 150 pund. Gegn greiðslu innan 10 daga þá var sektarupphæðin lækkuð niður í 100 pund, andvirði 17 þúsund króna.

Í viðtali við breska miðilinn sagðist Watson hafa verið miður sín vegna sektarinnar og beðið starfsmanninn um að gefa sér frekar viðvörun en það hafi hann ekki fallist á. Hún hafi aldrei áður gerst brotleg með neinum hætti og ekki þorað öðru en að borga sektina.

Hún hafði svo samband við borgaryfirvöld vegna málsins en rakst til að byrja með á veggi innan stjórnsýslunnar. Að endingu komst þó skriður á málið sem endaði með því að sektin var endurgreidd og bæjaryfirvöld báðu Watson afsökunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar

Nú er það svart – Giftu sig í kirkjugarði í þema Addams fjölskyldunnar
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af

Vísindamenn segja þetta vera eina dýrið sem gæti lifað heimsendi af
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást

Læknir deilir góðum ráðum til að léttast án þess að þjást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar

Þetta er besta sætið í flugvélum og samt vill enginn sitja þar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er

Fyrir 50 árum var ungri móður nauðgað og hún myrt þegar hún var á ferð með dóttur sinni – Núna liggur fyrir hver morðinginn er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings

Sakfelldir fyrir að fella eitt frægasta tré Bretlands í skjóli nætur – Þurfa að dvelja í varðhaldi út af reiði almennings