fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Zelenskyy segir að stimpla eigi Rússland sem hryðjuverkaríki

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. október 2022 14:32

Volodymyr Zelenskyy. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, hefur endurtekið ákall sitt um að Rússland verði lýst hryðjuverkaríki. Þetta gerði hann í kjölfar árásar Rússa í Zaporizhhzhia þar sem að minnsta kosti 14 létust og rúmlega 70 særðust, þar á meðal 11 börn.

Árásin var gerð um helgina. Í ávarpi sínu í nótt sagði Zelenskyy að „hryðjuverk sé glæpur sem verði að refsa fyrir“.

„Hryðjuverk ríkis eru einn svívirðilegasti alþjóðlegi glæpurinn, sem ógnar ekki aðeins einhverjum í heiminum heldur öllu alþjóðasamfélaginu. Ef hryðjuverk eru látin óátalin, ef hryðjuverkamönnum tekst að hræða svo mikið að einhver í heiminum er reiðubúinn til að loka augunum fyrir því, þá þýðir það tap, að við glötum frelsi okkar, glötum mannúð og lýðræði. Það er einmitt það sem Rússland vill. Þess vegna grípa Rússar til allra þessara hryðjuverka, allt frá flugskeytaárásum til alþjóðlegrar kreppu sem hryðjuverkaríkið framkallar,“ sagði Zelenskyy.

Hann bætti við að það beri að fordæma Rússland og einangra landið á öllum stigum fyrir atkvæðagreiðslu Allsherjarþings SÞ um „innlimum“ Rússa á hluta Úkraínu í rússneska ríkjasambandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni