fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

Sprengjur lentu skammt frá fréttamanni Danska ríkisútvarpsins sem var í beinni útsendingu – Upptaka

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. október 2022 07:09

Þessi kona særðist í árás Rússa fyrr á árinu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í morgun var Louise Brodthagen Jensen, fréttamaður Danska ríkisútvarpsins (DR) í beinni útsendingu frá Kyiv í Úkraínu. Á meðan hún ræddi við þáttastjórnendur í morgunþættinum á P1, sem er ein rása DR, heyrðist mikill hvinur yfir höfði hennar.

Þegar hún var spurð hvað þetta væri sagði hún að þetta hafi verið flugvél en skömmu síðar heyrðust sprengingar sem voru greinilega ekki langt frá henni.

Hún sagði strax að hún væri ósködduð og útvarpsfólkið í Danmörku sagði henni að koma sér strax í skjól.

Á heimasíðu DR kemur fram að hún sé ómeidd og sé nú í loftvarnarbyrgi.

Hér er hægt að heyra upptöku af útsendingunni þegar sprengjurnar féllu. Hún er í færslu frá því klukkan 07.54.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni