fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Segja að aukaverkanir af völdum þriðja skammts bóluefna séu ekki mjög frábrugðnar þeim við fyrri skammtana

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 9. ágúst 2021 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðustu tíu daga hafa Ísraelsmenn, 60 ára og eldri, getað fengið þriðja skammtinn af bóluefnum gegn kórónuveirunni. Þetta er gert til að reyna að halda aftur af útbreiðslu Deltaafbrigðis veirunnar í landinu. Flestir þeirra sem hafa fengið þriðja skammtinn hafa upplifað svipaðar aukaverkanir eða færri en þeir fengu þegar þeir fengu fyrri skammtana.

Þetta eru frumniðurstöður rannsóknar á hvernig þriðji skammturinn fer í fólk. Ísrael er eitt fyrsta ríki heims sem býður íbúum upp á þriðja skammtinn og því er vel fylgst með áhrifunum. Til dæmis fylgist bandaríska lyfjastofnunin mjög vel með gangi mála.

Í gær skýrði Clalit, sem er stærsti aðilinn á sviði heilbrigðismála í Ísrael, frá því að rúmlega 240.000 manns hafi fengið þriðja skammtinn af bóluefni frá Pfizer/BioNTech. Um 4.500 manns, sem fengu þriðja skammtinn frá 30. júlí til og með 1. ágúst, tóku þátt í frumrannsókninni. 88% þeirra sögðu að þeim hafi liðið „eins eða betur“ en eftir að þeir fengu skammt númer tvö. 31% sögðust hafa verið aumir þar sem nál var stungið í þá og var það algengasta aukaverkunin. Um 0,4% sögðust hafa glímt við öndunarörðugleika og 1% sagðist hafa leitað til læknis vegna aukaverkana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan
Pressan
Í gær

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður