fbpx
Þriðjudagur 02.september 2025
Fréttir

Fjölskylduharmleikur talinn ekki hafa átt sér stað: Íslensk kona segist hafa misst eiginmann og stjúpdætur í hörmulegu slysi

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 14. júlí 2021 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2013 stefndi íslensk kona Vátryggingafélagi Íslands og Líftryggingafélagi Íslands. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, næstum því átta árum seinna. Málið varðar dánarbætur sem konan krafðist eftir hörmulegt sjóslys sem á að hafa átt sér stað í Víetnam árið 2010, en þar segist hún hafa misst eiginmann sinn og tvær stjúpdætur. Þau voru frá Víetnam, en með dvalarleyfi og lögheimili á Íslandi.

Líftryggingafélagið og Vátryggingafélagið efuðust um frásögn konunnar, og sögðu sönnunargögnin í málinu ekki vera fullnægjandi. Í dag sýknaði héraðsdómur félögin tvö, vegna þess að engar fullnægjandi sannanir séu til staðar um andlát feðginanna

Áður hefur verið fjallað um mál konunnar í DV, en lesa má frekar um það hér.

Saga konunnar er á þann veg að mannskætt sjóslyss hafi átt sér stað í Víetnam þann 2. október 2010. Fjölskyldan var þá á ferðalagi og stödd á báti við strendur Hoang Chau, við borgina Hai Phong. Mikið hvassviðri olli því að bátnum hvolfdi og drukknuðu maðurinn og tvö börn hans.

Konan krafðist greiðslu dánarbóta úr þremur mismunandi tryggingum. Þær tryggingar eru líftryggingarbætur, dánarbætur úr fjölskyldutryggingu og dánarbætur úr Farkorti.

Líkt og áður segir gekk mál félaganna tveggja út á að atburðirnir í Víetnam hafi ekki átt sér stað, og bentu þau á að sönnunarbyrðin væri konunnar.

Fölsuð vottorð

Fyrir dómi voru dánarvottorð fjölskyldumeðlimanna, en lögreglurannsókn leiddi í ljós að þau væru fölsuð: Interpol í Víetnam staðfesti það, auk þess sem víetnamska ríkið fullyrti að þau væru ekki undirrituð af útgefanda vottorðanna.

Þar að auki virtust engin gögn benda til þess að læknir hafi skoðað meint lík fólksins, eða komið nálægt niðurstöðu um  andlát og dánarorsök fjölskyldumeðlimanna. Enn yfirleitt þarf að sanna andlát með læknisvottorði.

Niðurstaða lögreglurannsóknarinnar var því sú að engar sannanir eða trúverðugar skýringar væru til er vörðuðu andlát mannsins og dætra hans. Þar af leiðandi voru Vátryggingafélag Íslands og Líftryggingafélag Íslands sýknuð af öllum kröfum.

Dóminn má lesa hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hyggst stofna grasrótarsamtökin Strax í dag – „Ástæðan er persónuleg og alvarleg“

Hyggst stofna grasrótarsamtökin Strax í dag – „Ástæðan er persónuleg og alvarleg“
Fréttir
Í gær

Héraðssaksóknara falin meðferð kæru á hendur starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar – Saknar muna úr íbúð látins vinar

Héraðssaksóknara falin meðferð kæru á hendur starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar – Saknar muna úr íbúð látins vinar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir Bryndísar Klöru syngur á styrktartónleikum fyrir Bryndísarhlíð

Faðir Bryndísar Klöru syngur á styrktartónleikum fyrir Bryndísarhlíð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafa beðið eftir svari frá Reykjavíkurborg í 4 ár

Hafa beðið eftir svari frá Reykjavíkurborg í 4 ár
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sólveig Anna tekur undir með Elínu: „Ég man hvað ég var hissa“

Sólveig Anna tekur undir með Elínu: „Ég man hvað ég var hissa“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bríet Irma lést 24 ára að aldri – „Skuldum henni og öllum þeim sem enn berjast í myrkrinu að standa vörð um geðheilbrigði á Íslandi“

Bríet Irma lést 24 ára að aldri – „Skuldum henni og öllum þeim sem enn berjast í myrkrinu að standa vörð um geðheilbrigði á Íslandi“