fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Pressan

Rannsaka hvort starfsfólk í dómsmálaráðuneytinu hafi reynt að breyta úrslitum forsetakosninganna

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 27. janúar 2021 05:26

Færði Biden Trump gjöf með þessu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið rannsókn á hvort núverandi eða fyrrverandi starfsmenn þess hafi reynt að breyta niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember. Michael Horowitz, ráðuneytisstjóri, tilkynnti þetta á mánudaginn. Rannsóknin á að leiða í ljós hvort starfsfólk í ráðuneytinu hafi „tekið þátt í ólöglegum tilraunum“ til að breyta niðurstöðu forsetakosninganna.

Ákvörðunin um rannsóknina var tekin eftir að New York Times skýrði frá því að Donald Trump, fyrrum forseti, hafi á síðustu vikum valdatíðar sinnar reynt að fá Jeffrey Rosen, starfandi dómsmálaráðherra, til að taka undir fullyrðingar sínar og staðlausar samsæriskenningar um að víðtækt kosningasvindl hefði átt sér stað.

Rosen er sagður hafa hafnað þessu og þá hafi Trump haft samband við Jeffrey Clark, lögmann hjá ráðuneytinu. Clark tók undir fullyrðingar Trump um kosningasvindl og ræddu hann og Trump að sögn um að Trump myndi víkja Rosen úr embætti og Clark tæki við. Hann myndi síðan nota völd sín til að breyta niðurstöðum kosninganna. Hópur háttsettra embættismanna í ráðuneytinu fékk síðan veður af þessum fyrirætlunum og hótuðu þeir að hætta samstundis ef Trump losaði sig við Rosen. Þetta fékk að sögn New York Times Trump til að hætta við þessa áætlun sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð

Efnuð hjón töldu sig hafa fundið draumabarnapíuna en hún reyndist vera þeirra versta martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gabba og lokka börn til að fremja morð

Gabba og lokka börn til að fremja morð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Mættu til að handtaka fjölskylduföður fyrir alríkissvik – Höfðu ekki hugmynd um hryllinginn sem leyndist á heimilinu

Mættu til að handtaka fjölskylduföður fyrir alríkissvik – Höfðu ekki hugmynd um hryllinginn sem leyndist á heimilinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leigubílstjórinn lánaði farþega símann sinn í smástund – Hann átti eftir að sjá eftir því

Leigubílstjórinn lánaði farþega símann sinn í smástund – Hann átti eftir að sjá eftir því