fbpx
Mánudagur 15.desember 2025

Uppskrift: Glimrandi jólasíld – God fornøjelse

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 10. desember 2017 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Jómfrúrnar“ á Jómfrúnni í Lækjargötu deila þessari girnilegu og gullfallegu síldarbrauðs uppskrift með lesendum Birtu. Útgangspunkturinn er að fólk geti vippað þessu fram með stuttum fyrirvara í jólastressinu.

Kristín Hermundsdóttir, vaktstjóri á Jómfrúnni og Jakob E. Jakobsson núverandi eigandi og sonur stofnanda Jómfrúarinnar kunna að halda uppi góðu jólastuði.
Jólaleg á Jómfrúnni Kristín Hermundsdóttir, vaktstjóri á Jómfrúnni og Jakob E. Jakobsson núverandi eigandi og sonur stofnanda Jómfrúarinnar kunna að halda uppi góðu jólastuði.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Með þessu er hægt að töfra fram síld fyrir sex manns á fimmtán til tuttugu mínútum. Það má nota þetta sem forrétt, millirétt eða hvernig sem fólk það vill hafa það og svo setti ég inn smá hugmyndir að meðlæti svo það sé hægt að bera þettta fallega fram fyrir gestina, helst á dönskum diskum með Álaborgarsnafsi,“ segir Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar í Lækjargötu.

„Það eru ekki allir sem hafa þá hefð að bjóða upp á síld á jólunum en það er auðvelt að komast upp á lagið með njóta hennar. Þá legg ég til að fólk velji sér gott rúgbrauð og svo er frábært að hafa kaldan Álaborgarsnafs með. Svona upp á stemninguna.

Það eru að róterast hérna ættliðirnir af fastagestum enda Jómfrúin búin að vera til í 23 ár

Síldin er rosalega vinsæl hjá okkur á Jómfrúnni fyrir jólin og það er allt upp bókað fram að Þorláksmessu. Við erum samt búin að ákveða að hafa opið milli jóla og nýárs og þá getur fólk komið í jólaseðilinn líka, til áramóta.

Það er bullandi stemning hérna fyrir jól og heilmikið stuð. Fólk er að skála svolítið, en okkur finnst það skemmtilegast að nú eru fastagestirnir farnir að koma með börn og barnabörn, sem koma svo aftur með börnin sín seinna. Það eru að róterast hérna ættliðirnir af fastagestum enda Jómfrúin búin að vera til í 23 ár.“

Piparrótarsíld að hætti Hermanns Guðmundssonar

Forréttur fyrir sirka 4–6

500 g marineruð síld
4 msk. majónes
1 msk. sýrður rjómi, 18%
1 msk. dijon-sinnep
1 msk. worcestershire-sósa
1 msk. hunang
4 msk. fersk, fínt rifin piparrót
safi og raspaður börkur af ½ sítrónu
Salt og hvítur pipar

Aðferð

Gott er að byrja á því að sigta allan síldarlöginn vel frá síldinni. Blanda saman í skál öllum hráefnunum nema síldinni og smakka dressinguna til með salti og pipar. Bætið að lokum síldarbitunum út í. Gott er að geyma piparrótarsíldina í kæli yfir nótt áður en hún er borin fram.

Framsetning

4–6 rúgbrauðssneiðar með íslensku smjöri, 5 stk. soðin egg, skorin í báta, 5 stk. kirsuberjatómatar, skornir til helminga, 1 stk. rauðlaukur, sneiddur niður í fallega þunna hringi. Kapersber, sólselja og toppað með fínt rifinni piparrót.

God fornøjelse!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Brennan Johnson gæti söðlað um innan höfuðborgarinnar

Brennan Johnson gæti söðlað um innan höfuðborgarinnar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Salah léttur og grínaðist í blaðamönnum þegar hann gekk framhjá þeim í gær

Salah léttur og grínaðist í blaðamönnum þegar hann gekk framhjá þeim í gær
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Tólf látnir eftir skotárás – Ótrúlegt myndband sýnir vegfaranda afvopna einn árásarmanninn

Tólf látnir eftir skotárás – Ótrúlegt myndband sýnir vegfaranda afvopna einn árásarmanninn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Munu ekki reyna við Greenwood vegna fortíðar hans

Munu ekki reyna við Greenwood vegna fortíðar hans
Pressan
Í gær

Þrettán ára drengur lést eftir að hafa úðað í sig ósoðnum núðlum

Þrettán ára drengur lést eftir að hafa úðað í sig ósoðnum núðlum
Pressan
Í gær

Ung kona fékk skilorðsbundinn dóm fyrir að valda dauða sona sinna í umferðarslysi

Ung kona fékk skilorðsbundinn dóm fyrir að valda dauða sona sinna í umferðarslysi