

Klámmyndaleikkonan Bonnie Blue, eða Tia Billinger eins og heitir í alvöru, er ólétt. Áður hefur hún þóst vera ólétt en núna fer það ekki á milli mála að hún er komin með óléttubumbu.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Hin 27 ára Bonnie gat sér frægðar í janúar á síðasta ári þegar hún rekkjaði með 1057 karlmönnum á aðeins 12 klukkutímum. Var það sagt vera nýtt heimsmet.
Síðan þá hefur hún stundað alls kyns uppátæki og margsinnis lent upp á kant við lögin. Meðal annars var hún handtekin á eyjunni Balí eftir að hafa auglýst eftir ungum drengjum til að stunda kynlílf með fyrir framan myndavélarnar.
Eftir heimsmetið laug Bonnie Blue því að hún væri ólétt, lét mynda sig með falska bumbu og sagðist ætla að streyma fæðingunni á netinu fyrir aðdáendur sína.
Núna fer hins vegar ekki á milli mála að Bonnie sé ólétt. Hefur hún birt myndir af sér á Instagram frá fríi sínu í Ayia Napa á Kýpur þar sem óléttubumban er augljós. Þá virðist barmur hennar einnig hafa stækkað.
„Ég sagði ykkur að ég væri ólétt. Það er ekki mér að kenna að þið eruð heimsk,“ skrifaði Bonnie í færslu á samfélagsmiðlum.
Bonnie hefur sagst hafa orðið ólétt eftir kynsvall með hundruðum manna. En áður en hún gerðist klámstjarna hafði hún greint frá erfiðleikum með að eignast barn með þáverandi kærasta sínum. Hvað sem er satt og logið varðandi þetta allt saman þá liggur ekki fyrir hver er faðirinn.