fbpx
Föstudagur 19.desember 2025

Allt það sem ég óska mér …

Uppáhaldsjólagjöfin og það sem þau óska sér í jólagjöf í ár

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 24. desember 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólin eru á næsta leiti og öll eigum við minningar um okkar uppáhaldsjólagjöf, gjöf sem sló í gegn jólin sem hún var gefin. Einnig langar okkur öllum í eitthvað í jólagjöf, sumum eitthvað lítið og öðrum stærra og íburðarmeira. DV fékk nokkra þekkta einstaklinga til að segja frá þeirra uppáhaldsjólagjöf hingað til og hvað þá langar í í jólagjöf núna í ár.

„Foreldrar mínir gáfu mér míkrófónn, míkrófónstand og nótnastand fyrir tæpum 20 árum. Það var nothæfasta gjöf sem ég hef fengið. Í ár langar mig í utanlandsferð á heitan stað.“
Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu og Föstudagslaganna: „Foreldrar mínir gáfu mér míkrófónn, míkrófónstand og nótnastand fyrir tæpum 20 árum. Það var nothæfasta gjöf sem ég hef fengið. Í ár langar mig í utanlandsferð á heitan stað.“

Mynd: Aline Fournier

„Ég hef fengið svo margt fallegt sem ég eiginlega bara get ekki gert upp á milli, fallegt handsmíðað skart eftir pabba, handgerða bók með myndum og textum, demantshring frá manninum og svo margt fleira persónulegt og fallegt, en ég veit að gjöfin sem sonur okkar gefur okkur í ár verður uppáhalds. Ég veit ekkert hvað er inni í pakkanum, en ég veit að þetta er eitthvað sem hann hefur föndrað alveg sjálfur og mér þykir strax svo vænt um fallega pakkann sem er skreyttur með glimmeri sem hann setti sjálfur á og bíður eftir að verða opnaður. Það er ekkert sem ég óska mér sérstaklega í jólagjöf, nema auðvitað að öllum líði vel og hafi það gott og notalegt um jólin, svo sagði ég reyndar mömmu að mig langaði í einhvern fínan púða inn í herbergi.“
Hanna Rún Bazev Óladóttir dansari: „Ég hef fengið svo margt fallegt sem ég eiginlega bara get ekki gert upp á milli, fallegt handsmíðað skart eftir pabba, handgerða bók með myndum og textum, demantshring frá manninum og svo margt fleira persónulegt og fallegt, en ég veit að gjöfin sem sonur okkar gefur okkur í ár verður uppáhalds. Ég veit ekkert hvað er inni í pakkanum, en ég veit að þetta er eitthvað sem hann hefur föndrað alveg sjálfur og mér þykir strax svo vænt um fallega pakkann sem er skreyttur með glimmeri sem hann setti sjálfur á og bíður eftir að verða opnaður. Það er ekkert sem ég óska mér sérstaklega í jólagjöf, nema auðvitað að öllum líði vel og hafi það gott og notalegt um jólin, svo sagði ég reyndar mömmu að mig langaði í einhvern fínan púða inn í herbergi.“
 „Ég kaus að líta á það sem jólagjöf í fyrra þegar dóttir okkar hresstist ótrúlega aðfaranótt aðfangadags, þá orðin þriggja mánaða, eftir margar vikur á spítala með kíghósta. Svo man ég eftir því að hafa fengið sléttujárn frá foreldrum mínum í jólagjöf í 9. bekk og mér fannst það meiriháttar bylting fyrir krullurnar og skvísulætin. Í jólagjöf í ár langar mig mest í góðar bækur.“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: „Ég kaus að líta á það sem jólagjöf í fyrra þegar dóttir okkar hresstist ótrúlega aðfaranótt aðfangadags, þá orðin þriggja mánaða, eftir margar vikur á spítala með kíghósta. Svo man ég eftir því að hafa fengið sléttujárn frá foreldrum mínum í jólagjöf í 9. bekk og mér fannst það meiriháttar bylting fyrir krullurnar og skvísulætin. Í jólagjöf í ár langar mig mest í góðar bækur.“
„Ég man einna best eftir dúkku sem ég fékk frá foreldrum mínum þegar ég var um níu ára. Sú gat hjólað og þó hún hefði seint unnið Tour de France þá fannst mér hún ótrúlegt undur. Þar sem ég er þegar búin að kaupa flestar bækur sem mig langar að lesa þá myndu skór gleðja mig mjög í jólagjöf í ár. Því hærri hælar, því betra.“
Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur og byggingaverkfræðingur: „Ég man einna best eftir dúkku sem ég fékk frá foreldrum mínum þegar ég var um níu ára. Sú gat hjólað og þó hún hefði seint unnið Tour de France þá fannst mér hún ótrúlegt undur. Þar sem ég er þegar búin að kaupa flestar bækur sem mig langar að lesa þá myndu skór gleðja mig mjög í jólagjöf í ár. Því hærri hælar, því betra.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Ég man þegar ég fékk fótboltaspil ungur drengur í sveitinni. Ég ærðist af fögnuði. Kallarnir, bláir og rauðir, dönsuðu á gormum og það söng í þegar maður þrusaði stálkúlunni í markið. Þá átti maður stóra fótboltadrauma og lét þá rætast þar sem maður lá á hnjánum á stofugólfinu og skoraði frá miðju. 1-0 fyrir bláu kallana. Ef ég fæ bók og sokka í jólagjöf í ár, þá er ég glaður.“
Eyþór Árnason, skáld og sviðsstjóri Hörpu: „Ég man þegar ég fékk fótboltaspil ungur drengur í sveitinni. Ég ærðist af fögnuði. Kallarnir, bláir og rauðir, dönsuðu á gormum og það söng í þegar maður þrusaði stálkúlunni í markið. Þá átti maður stóra fótboltadrauma og lét þá rætast þar sem maður lá á hnjánum á stofugólfinu og skoraði frá miðju. 1-0 fyrir bláu kallana. Ef ég fæ bók og sokka í jólagjöf í ár, þá er ég glaður.“

Mynd: DV ehf / Þormar Vignir Gunnasson

„Nýr kósígalli, loðinniskór, súkkulaði og góð bók gera aðfangadagskvöldið mitt, þannig að það er alltaf ein af mínum uppáhaldsgjöfum. Jólasveinninn sér oftast til þess að ég fái þetta að gjöf á hverju ári. Ég elska að fá ný rúmföt og eru þau ofarlega á jólagjafalistanum í ár. Svo langar mig reyndar líka í fallegt snyrtiborð með ljósum en hver veit hvað kemur undan jólatrénu í ár.“
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, athafnakona og eigandi Gyðju Collection: „Nýr kósígalli, loðinniskór, súkkulaði og góð bók gera aðfangadagskvöldið mitt, þannig að það er alltaf ein af mínum uppáhaldsgjöfum. Jólasveinninn sér oftast til þess að ég fái þetta að gjöf á hverju ári. Ég elska að fá ný rúmföt og eru þau ofarlega á jólagjafalistanum í ár. Svo langar mig reyndar líka í fallegt snyrtiborð með ljósum en hver veit hvað kemur undan jólatrénu í ár.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Brotið var á Höllu í fjögur ár í æsku – „Sem ung stúlka vildi ég hefnd. Ég er enginn engill“

Brotið var á Höllu í fjögur ár í æsku – „Sem ung stúlka vildi ég hefnd. Ég er enginn engill“
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Móðirin brjáluð yfir ásökunum um kynferðisbrot – „Ekki séns í helvíti“

Móðirin brjáluð yfir ásökunum um kynferðisbrot – „Ekki séns í helvíti“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Túfa hafnaði ÍBV og er á leið til Svíþjóðar

Túfa hafnaði ÍBV og er á leið til Svíþjóðar
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kristján Sívarsson fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar – Olli höfuðkúpubroti konu

Kristján Sívarsson fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar – Olli höfuðkúpubroti konu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Óhugnanlegar upplýsingar fundust á tölvu háskólanemans frá því skömmu áður en hún lést

Óhugnanlegar upplýsingar fundust á tölvu háskólanemans frá því skömmu áður en hún lést
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Heimsþekktur grínisti gerði óspart grín að nafni íslenskrar konu – „Er það í alvöru nafnið þitt?“

Heimsþekktur grínisti gerði óspart grín að nafni íslenskrar konu – „Er það í alvöru nafnið þitt?“
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Fjölskylda NASCAR ökuþórs lést í flugslysi í gær – Skilaboð til mömmu mínútu áður: „Við erum í vandræðum“

Fjölskylda NASCAR ökuþórs lést í flugslysi í gær – Skilaboð til mömmu mínútu áður: „Við erum í vandræðum“