

Þetta svarar til þess að um 3,3 af hverjum 100.000 jarðarbúum hafi látist af völdum sjúkdómsins. Fjórir mánuðir eru nú síðan fyrstu tilkynningar um veiruna fóru að berast frá Kína. Fyrsta dauðsfallið í Wuhan var staðfest 11. janúar og og síðan hefur veiran breiðst út um nær allan heim.
Verst hafa nokkur Evrópuríki og Bandaríkin orðið úti í faraldrinum. New York er sú borg sem verst hefur farið út úr honum en þar hafa rúmlega 19.000 látist. Talið er að óstaðfest smit og andlát séu mörg víða um heim og því gætu tölurnar verið enn hærri.
Financial Times hefur sagt að í löndum eins og Ítalíu, Belgíu og á Spáni geti dánartalan verið allt að 50 til 90 prósent hærri en hefur verið gefið upp. Ástæðan er að í þessum löndum ganga skráningar hægt og illa fyrir sig. Einnig hafa komið fram efasemdir um dánartölur sem kínversk yfirvöld hafa gefið upp. Þar eru 4.637 andlát skráð.