
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur svarað áskorun Eflingar þess efnis að ef hann staðfesti tilboð til Eflingar sem hann lýsti í Kastljóssþætti (110 þúsund króna hækkun lægstu launa) skriflega séu Efling tilbúin að stöðva verkfallið sem staðið hefur undanfarið í tvo daga. Dagur frábiður sér skeytasendingar í fjölmiðlum en segist standa við tilboðið og býður Eflingu til viðræðna. Birti hann rétt í þessu yfirlýsingu þess efnis á Facebook:
Samninganefnd Eflingar sendi mér erindi fyrr í dag, sem einosg fyrr var sent beint í fjölmiðla. Ég sendi eftirfarandi viðbrögð nú seinni partinn: „Ég fagna því að Efling opni á að fresta verkföllum. Ég stend að sjálfsögðu við allt sem ég sagði í Kastljósi á sínum tíma en það er ekki gagnlegt þegar reynt er að að snúa út úr þeim yfirlýsingum eða standa í skeytasendingum í fjölmiðlum til að leysa kjaradeilur. Gott tilboð borgarinnar um að hækka laun Eflingarfólks hjá borginni liggur fyrir, með sérstakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvennastétta. Tilboðið er á grunni lífskjarasamninganna, með lengingu orlofs og útfærslu á styttingu vinnuvikunnar. Í stað þess að standa í frekari skeytasendingum í fjölmiðlum vil ég bjóða Sólveigu Önnu formann Eflingar til fundar til að ræða hina erfiðu stöðu viðræðna og hvar ber á milli aðila.“