fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Eyjan

„Á 10 daga fresti er hér íslensk fjölskylda í molum“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. mars 2020 14:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erum við að gera nóg til að stemma stigu við andlátum samlanda okkar úr ofneyslu fíkniefna? Þetta er spurning sem þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, varpar fram með athyglisverðum hætti á Facebook.

„Segjum að hér hrapaði flugvél í innanlandsflugi annað hvert ár. Að hér dæju margir tugir einstaklinga í flugslysi á milli Reykjavíkur og Akureyrar á hverju ári. Segjum að hér geisaði farsótt og á tíu daga fresti myndi einstaklingur deyja úr henni. Segjum að banaslys í umferðinni myndu fimmfaldast frá því sem nú er. Ég er sannfærður um að samfélagið allt stæði á öðrum endanum. En sem betur eru þessi tilteknu atvik ekki að gerast.“

Hins vegar er það staðreynd á hér á landi, þó samfélag okkar sé fámennt, ríkir faraldur sem margir hafa tapað lífinu fyrir.

„Því á um 10 daga fresti deyr einstaklingur vegna ofneyslu fíkniefna. Á 10 daga fresti er hér íslensk fjölskylda í molum vegna þessara dauðsfalla. Þrátt fyrir þetta er furðulítil umræða um þessi mál. Þetta er faraldur sem ekki fer hátt um.“

Bendir Ágúst á það að á fimmtudag verður haldin fundur á vegum SÁÁ um ópíóðafaraldurinn á Íslandi og dauðsföll fíknisjúklinga. Það sé sorglegt að nauðsyn sé á slíkum fund.

„Við þurfum að vinna miklu betur saman að bættri líðan og hætta í raun að líta framhjá ótímabærum dauða tuga Íslendinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum