fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Eyjan

Ísland dýrast í Evrópu og þriðja dýrasta í heiminum öllum

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. mars 2020 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt endurskoðuðum tölum  Hagstofu Evrópu, Eurostat, var verðlag á íslandi 66% hærra hér á landi en öðrum Evrópulöndum að meðaltali árið 2018.

Er þetta töluvert meiri munur en áður hafði komið fram árið 2018, þegar Eurostat birti samanburð á neysluútgjöldum heimila í Evrópulöndum, en þá var ísland 56% hærri en meðaltalið í löndum innan evrópska efnahagssvæðisins. Morgunblaðið greinir frá.

Á Íslandi var heilbrigðisþjónusta, menning- og tómstundir, skólaganga, hótel-og veitingaþjónusta dýrust í samanburði annarra landa, en Ísland var í þriðja sæti yfir mat og drykk, og í öðru sæti yfir áfengi og tóbak, sem og samgöngum.

Þriðja dýrasta í heimi

Samkvæmt úttekt CEOWORLD tímaritsins í febrúar, er Ísland þriðja dýrasta land í heimi. Ísland hefur gjarnan verið efst á listum þegar kemur að ýmiskonar kostnaði, hvort sem er á fasteignum,- leigu,- mat, eða bjór.

Nú síðast í janúar var Ísland dýrasta land í heimi samkvæmt úttekt Business Insider.

Samkvæmt lista CEOWORLD, sem birtur var þann 2. febrúar, er Sviss dýrasta landið til að búa í, þá Noregur og loks Ísland í þriðja sæti. Þá koma Japan, Danmörk Bahama eyjur, Lúxemborg, Ísrael, Singapúr og Suður- Kórea.

Ódýrasta land heims er Pakistan, en 132 lönd eru á listanum.

Tölfræði CEOWORLD er fengin frá ýmsum rannsóknum og opinberri tölfræði og vísitölum er snerta húsnæði, fatakostnað, leigubílakostnað, internetkostnað, matvöruverð, samgöngukostnað, og verð á matsölustöðum.

Hér má sjá topp 20 dýrustu löndin en listann í heild sinni má sjá hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum