fbpx
Mánudagur 08.júní 2026

Fyrrverandi kærastinn var á öllum ferðamyndunum – Fann snilldarlausn

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 4. júní 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baylee Woodward er nítján ára og hefur átt ansi skemmtilegt og ævintýralegt síðasta ár. Hún fékk vinnu á snekkju í fyrra og hefur meira og minna verið að ferðast síðan þá. Í ferðum sínum tekur hún mikið af töff og skemmtilegum myndum og deilir þeim á Instagram. Fyrrverandi kærasti hennar var ferðafélagi hennar og var því á næstum öllum myndunum.

Því miður endaði samband þeirra alls ekki vel. Kærastinn hennar var einnig yfirmaður hennar á snekkjunni og rak hana.

„Sambandsslitin voru erfið vegna þess að hann var ferðafélaginn minn í ár, við vorum saman bókstaflega allan sólarhringinn og síðan rak hann mig bara upp úr þurru,“

sagði hún við Buzzfeed. Henni fannst hundfúlt að fyrrverandi kærastinn væri á svona mörgum flottum myndum og fann snilldar lausn til að halda áfram að deila myndunum. Getur þú séð hvað hún gerði?

Baylee sagðist hafa ákveðið að breyta myndunum svo hún gæti „horft til baka og hlegið að þessu öllu.“

Baylee deildi myndunum á Facebook og hafa þær fengið mikið lof netverja. „Ég elska hvað ég hef fengið mikinn stuðning,“ sagði hún. Hún hefur nú fengið vinnu á snekkju og ætlar eftir það að ferðast til Evrópu og Asíu ef hún finnur annan ferðafélaga.

Við óskum Baylee góðs gengis og hlökkum til að sjá fleiri myndir!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.