Tottenham heldur áfram að halda sér í baráttunni um þann stóra en liðið fékk Leicester í heimsókn á Wembley í dag.
Davinson Sanchez kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik þegar Leicester var síst slakari aðilinn.
Hugo Lloris átti góðan dag í búrinu hjá Tottenham og varði það sem þurfti.
Christian Eriksen kom Tottenham í 2-0 áður en Jamie Vardy lagaði stöðuna fyrir gestina.
Það var svo Heung-Min Son sem tryggði Tottenham 3-1 sigur með marki í uppbótartíma.
Tottenham er því áfram fimm stigum á eftir toppliði Liverpool og allt getur gerst þegar tólf leikir eru eftir.