

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, kvartaði yfir dómgæslunni í kvöld er hans menn mættu West Ham.
Liverpool gerði 1-1 jafntefli á London Stadium en mark liðsins átti ekki að standa þar sem James Milner var rangstæður.
Klopp mætti í viðtal eftir leik og gaf í skyn að dómararnir hafi dæmt með West Ham eftir að hafa áttað sig á mistökunum.
Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, hlustar ekki á kvörtun Klopp og nefndi leik Malaga og Borussia Dortmund sem fór fram fyrir nokkrum árum.
Pellegrini var þá stjóri Malaga og Klopp hjá Dortmund en liðin áttust við í Meistaradeildinni.
,,Þetta var fullkomin frammistaða. Það sem við rifumst um skiptir ekki máli. Klopp er vanur að vinna á rangstöðumarki,“ sagði Pellegrini.
,,Hann vann okkur hjá Malaga með marki þar sem leikmaðurinn var sjö metrum fyrir innan. Hann getur ekki kvartað yfir neinu.“
Hér má sjá það sem Pellegrini er að tala um.
