fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Eyjan

Kristín Ingólfsdóttir formaður ráðgjafarnefndar Landsspítalans

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 26. júní 2018 10:45

Kristín Ingólfsdóttir, fyrrum rektor Háskóla Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Formaður nefndarinnar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera forstjóra og framkvæmdastjórn „til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans . Skal nefndin m.a. fjalla um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir spítalans og langtímastefnu hans. Nefndin skal m.a. skipuð fulltrúum notenda þjónustu spítalans. Formaður skal í samráði við forstjóra boða til upplýsinga- og samráðsfunda eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en tvisvar á ári“ líkt og segir í 20. gr. laga um heilbrigðisþjónustu þar sem kveðið er á um hlutverk ráðgjafarnefndarinnar.

Tengsl spítalans við þjóðfélagið efld og áhrif notenda þjónustunnar aukin

Heilbrigðisráðherra hefur sett nefndarmönnum í ráðgjafarnefnd Landspítala erindisbréf þar sem segir meðal annars að tilgangur með starfsemi nefndarinnar skuli vera að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu Landspítala.

Skipun nefndarinnar er sem hér segir:

Aðalmenn:

  • Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, formaður
  • Óskar Reykdalsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, varaformaður
  • Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
  • Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
  • Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB
  • Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu
  • Vilmundur Guðnason, prófessor og forstöðumaður Hjartaverndar

Varamenn:

  • Hjalti Þór Vignisson, fyrrverandi sveitastjóri
  • Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla
  • Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna
  • Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar
  • Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalans okkar
  • Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
  • Reynir Tómas Geirsson, fyrrum prófessor og fæðingarlæknir
  • Henny Hinz, hagfræðingur ASÍ
  • Andri Snær Magnason, rithöfundur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust

Pétur Marteinsson: Stríddi við námsörðugleika – fótboltinn gaf mér sjálfstraust
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin