
Julian Nagelsmann hefur valið 26 manna hóp Þýskalands fyrir HM í sumar og þar eru nokkur óvænt nöfn.
Markvörðurinn Manuel Neuer, sem lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2024, er aftur kominn í hópinn 40 ára gamall og gæti orðið aðalmarkvörður Þjóðverja á mótinu. Það er ekkert pláss fyrir Marc andre ter Stegen.
Kai Havertz, Florian Wirtz og Jamal Musiala eru meðal þeirra sem leiða sóknarleik liðsins, en hinn 18 ára Lennart Karl frá Bayern Munchen komst einnig í hópinn.
Þá vakti það athygli að Leroy Sane var valinn fram yfir Karim Adeyemi. Sane hefur skorað sjö mörk og lagt upp fimm fyrir Galatasaray á tímabilinu.
Þýskaland verður í F-riðli á HM þar sem liðið mætir Kúrasaó, Ekvador og Fílabeinsströndinni.
