fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Ísland aldrei dýrara og orðið dýrasta land heims – Verðlag 84% hærra en í 27 löndum Evrópu að meðaltali

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. maí 2026 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viska, stéttarfélag háskólamenntaðra, hefur birt greiningu þar sem fram kemur að Ísland hafi aldrei verið dýrara en í ár og sé nú dýrasta land heims. Verðlag mælist nú 84% hærra en í 27 löndum Evrópu að meðaltali sem sé sögulegt met þegar horft er til 30 ára. Ísland sé raunar mun dýrara en flest önnur lönd sem eru á topp 10 lista yfir dýrustu lönd heimsins.

Þessi munur birtist sérstaklega í innlendri matvöru, en hér er mjólk, mjólkurvörur og egg 75% dýrari en á hinum Norðurlöndunum. Kjöt, lifandi dýr og aðrir hlutar af slátruðum landdýrum eru 71% dýrari en á hinum Norðurlöndunum. Heilt yfir er landið 44% dýrara í matvörum miðað við önnur Norðurlönd.

Viska tekur fram að launamunur skýri ekki allan þennan verðmun. Verðmunur milli Íslands og annarra Norðurlanda sé nú nær tvöfaldur miðað við launamun.

„Ofurtollar og fákeppni skýra stóran hluta verðmunarins umfram launamuninn.“

Viska tekur eins fram að verðlag á Íslandi sé nú að hækka tvöfalt hraðar en verðlag innan Evrópska efnahagssvæðisins, en á sama tíma hafi krónan haldist tiltölulega sterk. Það sé því fyrirséð að verðlag hér á landi muni hækka enn frekar umfram viðskiptalöndin, en slíkt sé ósjálfbær staða fyrir útflutningsatvinnuvegi.

„Allt stefnir í samdrátt í útflutningi, veikingu krónunnar og kaupmáttarrýrnun nema takist að koma verðbólgu á Íslandi undir verðbólgu í viðskiptalöndunum.“

Viska hvetur fyrirtæki og heimili til að taka höndum saman til að ná verðbólgunni niður með því að draga úr álagningu sem hefur aukist undanfarið. Nefnir Viska að á árunum 2023-2026 hafi verð innlendrar vöru hækkað um 20 prósent á meðan framleiðslukostnaður jókst aðeins um 12 prósent.

Leggur Viska til að heimilin í landinu auki verðvitund sína því þannig geti þau veitt fyrirtækjum aðhald.

Bera saman verð milli verslana áður en verslað er, t.d. á ja.is eða með verðlagsappi ASÍ
Bera saman kíló- og einingaverð í matvörubúðum og velja alltaf ódýrasta kostinn
Nýta tveir-fyrir-einn tilboð á veitingastöðum gegnum símafyrirtæki og vildarklúbba
Hætta viðskiptum við fyrirtæki sem hafa hækkað verð óhóflega og verðlauna þau sem bjóða upp á sanngjörn verð, t.d. með því að hvetja aðra til að versla við þau.

Loks bendir Viska á að stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til að draga úr verðbólgu. Auka þurfi traust á ríkisfjármálum og byggja fjármálaáætlanir á raunhæfari forsendum. Svo þurfi að tryggja íslenskum fyrirtækjum sambærileg starfsskilyrði og erlendis, meðal annars með virkara samkeppniseftirliti og hagstæðara regluverki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“
Fréttir
Í gær

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 
Fréttir
Í gær

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar