fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

56 ára kona lést eftir að hafa fallið niður um opið holræsi á Manhattan í New York á mánudagskvöld. Atvikið hefur vakið mikinn óhug meðal borgarbúa og er nú til rannsóknar hjá yfirvöldum.

Konan, Donike Gocaj frá Briarcliff Manor í Westchester-sýslu, féll um þrjá til fimm metra niður í opið holræsið nálægt gatnamótum East 52nd-strætis og Fifth Avenue eftir að hún steig út úr bifreið sinni skömmu fyrir miðnætti.

Vitni á vettvangi segja að konan hafi öskrað í örvæntingu eftir hjálp og kallað ítrekað: „Ég er að deyja.“

Carl Wood, sérfræðingur í brunavörnum sem átti leið hjá þegar slysið varð, sagðist hafa hlaupið að og hringt í neyðarlínuna.

„Hún hvarf bara niður í holuna, eins og í teiknimynd,“ sagði Wood við bandaríska fjölmiðla. Hann sagði lokið yfir holræsið hafa legið við hlið þess án nokkurra viðvarana. Virðist Donika hafa lagt bifreið sinni, stigið út úr bílnum og fallið beint niður í ræsið.

Slökkvilið og sjúkraflutningamenn komu á vettvang innan nokkurra mínútna, en þá höfðu köll konunnar þagnað. Hún var dregin meðvitundarlaus upp úr holunni og flutt á sjúkrahús þar sem hún var síðar úrskurðuð látin.

Ekki liggur enn fyrir hvað olli því að holræsið var opið. Veitufyrirtækið Con Edison segir myndbandsupptökur benda til þess að þungur vörubíll hafi ekið yfir lokið og losað það um tólf mínútum áður en konan lagði bifreið sinni á svæðinu.

Vitni lýstu því einnig að mikill hiti hefði verið niðri í holunni og að konan hefði staðið í vatni. Talið er mögulegt að heitt vatn, gufa eða slæm loftgæði í holunni hafi átt þátt í dauðsfallinu, en réttarmeinafræðingar rannsaka nú nákvæma dánarorsök.

„Kannski var þetta sjóðandi heitt vatn. Ég veit það ekki, en það virtist mjög heitt þarna niðri,“ sagði Wood og bætti við að slökkviliðsmenn hefðu notað grímur þegar þeir sóttu konuna.

Atvikið hefur vakið mikla reiði og ótta meðal íbúa og starfsfólks í Midtown-hverfinu.

„Einhver gerði alvarleg mistök,“ sagði einn verkamaður á svæðinu. „Maður sér aldrei svona niðurfall standa opið eitt og sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 
Fréttir
Í gær

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“
Fréttir
Í gær

Fær bætur eftir að geðlyf hafði skelfilegar aukaverkanir

Fær bætur eftir að geðlyf hafði skelfilegar aukaverkanir
Fréttir
Í gær

Guðmundur Árni hættir í pólitík og tekur ekki sæti í bæjarstjórn

Guðmundur Árni hættir í pólitík og tekur ekki sæti í bæjarstjórn
Fréttir
Í gær

Segist hafa verið gaslýst opinberlega af ráðherrum ríkisstjórnarinnar – „Hvað gerði ég til að verðskulda það?“

Segist hafa verið gaslýst opinberlega af ráðherrum ríkisstjórnarinnar – „Hvað gerði ég til að verðskulda það?“