
Mál gegn lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, sem ákærður er fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness í dag.
Skúli er sakaður um að hafa svip Dönu Jóhannsdóttur lífi er hún var lögð inn á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) í Reykjanesbæ, þann 1. ágúst árið 2019. Dana kom þangað til hvíldarinnlaganar en Skúli, sem var yfirlæknir og bar læknisfræðilega ábyrgð á meðferð Dönu, setti hana á lífslokameðferð sama dag. Þetta gerði hann þrátt fyrir að Dana hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm.
Samkvæmt ákvörðun Skúla voru Dönu gefin slævandi lyf, morfín og morfínskyld lyf, Leponex og Dormicum. Samkvæmt ákæru leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar á sjúkrahúsinu laugardaginn 19. október árið 2019. Hún var þá 73 ára gömul.
Alls voru sex mál af sama tagi gegn Skúla, þ.e. mál er vörðuðu ótímabær andlát sjúklinga á HSS, til rannsóknar hjá lögreglu um árabil en niðurstaðan varð sú á endanum að fella niður rannsókn í fimm málum og ákæra í þessu eina máli.
Lögmaður Skúla Tómasar, Almar Þ. Möller, lýsti því yfir að hann ætlaði að krefjast frávísunar ákærunnar. Ekki kom greinilega fram á hvaða forsendum en málflutningur um þessa kröfu verður þann 26. júní.
Venjulega þurfa sakborningar að mæta við þingfestingu og taka afstöðu til ákæru, en þegar krafist er frávísunar, eins og hér, þá er ekki þörf á að þeir mæti fyrr en leyst hefur verið úr þeim ágreiningi.