
„Kona sem átti að passa litla strákinn minn brást honum hryllilega. Vonandi sér hún sóma sinn í því að bæta honum þetta upp þó að það sé ekkert sem geti tekið til baka skaðann sem hún olli,“ segir móður barns á Austurlandi, sem samkvæmt ákæru héraðssakóknara varð fyrir ofbeldi af hendi starfskonu á leikskóla.
Morgunblaðið greinir frá því að kona sem starfaði á leikskóla hafi verið ákærð fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum í tveimur tilvikum, annars vegar er hún sökuð um ofbeldi gegn dreng á leikskóla og hins vegar gegn syni sínum.
Í fyrra tilvikinu er hún sögð hafa slegið dreng á leikskólanum í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut roða á vinstri kinn og fór að gráta.
Hún er síðan einnig ákærð fyrir að hafa slegið son sinn í andlitið.
Vegna atviksins í leikskólanum eru gerðar kröfur um miskabætur frá konunni að fjárhæð tvær milljónir króna. Aðili tengdur syni hennar gerir síðan kröfu um miskabætur vegna meints ofbeldis gegn honum fyrir 400 þúsund krónur.
Móðir drengsins á leikskólanum, sem var fimm ára þegar meint brot átti sér stað, lýsti atvikinu þannig í viðtali við DV síðasta sumar:
„Þann 15. apríl 2024, rúmum hálftíma eftir að barnið mitt kom á leikskólann, þá var hann ásamt tveimur öðrum börnum að leika sér. Þá kemur hún að honum og ýtir syni mínum til að stoppa leikinn en kann skall í gólfið. Sonur minn bregst þannig við að hann bítur hana og þá slær hún hann af krafti í andlitið, með þeim afleiðingum að hann varð rauður á kinn, auga og eyra.“
Konan missti starf sitt á leikskólanum í kjölfar atviksins, var henni þó ekki sagt upp en gefinn kostur á að segja upp sjálf, sem hún gerði.
„Ég er mjög ánægð með að hún hafi verið ákærð og ég vona að hún fái þá refsingu sem hæfir henni. Mér finnst sorglegt að henni hafi verið veitt starf þar sem hún á að annast lítil börn og mér finnst að þetta mál og önnur mál sem hafa komið upp í leikskólum þurfi að verða til þess að einhverjar breytingar verði á leikskólamálum landsins og skoðað verði betur hverjir fá að starfa við umönnun barna,“ segir móðir drengsins ennfremur.
Málið hefur verið þingfest við Héraðsdóm Austurlands. Hin ákærða segir í samtali við DV að hún hafi neitað sök í báðum ákæruliðum. Hún segist ekki vilja tjá sig frekar um málið að sinni, að ráði lögmanns síns.