fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 21:00

Mynd: Anton Brink. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samgöngustofa hefur hafnað kröfu farþega í flugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Rómar um bætur vegna seinkunar sem varð á fluginu. Sakaði farþeginn meðal annars Icelandair um að sinna því ekki að hreinsa snjó af flugvélinni áður en farþegar komu um borð en hann fullyrti að hætt hefði að snjóa hálfum sólarhring áður. Vildi hann meina að farþegar hefðu verið látnir bíða of lengi um borð í flugvélinni að ósekju. Flugið var 29. október á síðasta ári. Það lenti í Róm rétt yfir 4 klukkustundum á eftir áætlun. Daginn áður hafði verið mikil snjókoma um allt suðvesturhornið sem hafði meðal annars í för með sér miklar tafir á umferð.

Reykvíkingar svara háðsglósum Norðlendinga vegna snjókomunnar fullum hálsi – „Þetta er ekkert grín þó sumum finnist það“

Í kröfu farþegans um bætur kom fram að það væri óumdeilt að vont veður með mikilli snjókomu hefði verið daginn áður en það hafi hætt að snjóa um klukkan 18. Hann hefði komið um borð í flugvélina um klukkan 8 morguninn eftir og þá hafi verið liðnar meira en 12 klukkustundir síðan það hætti að snjóa:

„Samt er um 20-30 cm lag af frosnum snjó á flugvélinni. Það að Icelandair ákvað að hreinsa ekki flugvélina fyrr en farþegar voru komnir um borð, meira en 12 tímum eftir að veðrinu slotaði eru ekki óviðráðanlegar aðstæður.“

Það að Icelandair hafi ákveðið að umrædd flugvél yrði hreinsuð síðast, vegna þess að hún þyrfti ekki að koma til Íslands aftur sama dag, væru heldur ekki óviðráðanlegar aðstæður. Icelandair hafi getað látið hreinsa klakabrynju af vélunum miklu fyrr um morguninn og framkvæmt venjuleg afísingu rétt fyrir flugtak.

„Hreinsun klakabrynju af flugvélinni hófst eftir að vélin hefði átt að vera lent í Róm, og Icelandair bauð ekki upp á ókeypis máltíð, þrátt fyrir dvöl inni í flugvélinni í 10 klst.“

Enn slæmt

Í andsvörum Icelandair var fullyrt að þrátt fyrir að þennan morgun hefði verið hætt að snjóa þá hefði enn gætt töluverðra áhrifa af því slæma veðri sem hefði verið daginn áður.

Slæm skilyrði hafi verið á flugbrautum og stæðum, snjófok og erfið vetrarfærð og vísaði Icelandair þessu til stuðnings til veðurgagna.

Við slíkar aðstæður væri óhjákvæmilegt að einhver röskun yrði á flugumferð enda verði erfiðara um vik að leysa af hendi hefðbundin verkefni eins og afísingu og fermingu og affermingu á flugvélum. Þá sé slæmt ástand á flugbrautum til þess fallið að hægja á flugumferð. Þá væri það ekki beinlínis á forræði félagsins að bregðast við vetrarfærðinni á Keflavíkurflugvelli eða tryggja að aðstæður séu viðunandi. Þættir sem séu utan verksviðs félagsins, svo sem hreinsun og ruðningur á flugbrautum og stæðum geti haft veruleg áhrif á hvernig flugumferðin gangi fyrir sig.

Aðstæður á Keflavíkurflugvelli hafi orsakast af hinu fordæmalausa fannfergi frá 28. október sem hafi haft gríðarleg áhrif á starfsemi og aðstæður á flugvellinum þann dag. Áhrifanna hafi gætt næstu daga. Aðstæðurnar 28. október hafi því valdið keðjuverkandi áhrifum sem síðan hafi haft veruleg áhrif á flugumferð um morguninn 29. október, þegar umrætt flug átti að fara í loftið.

Massi

Vildi Icelandair  meina að þar sem seinkunin hefði orðið af óviðráðanlegum orsökum ætti farþeginn ekki rétt á bótum.

Í umsögn sinni um andsvör Icelandair sagði farþeginn að gögn frá félaginu staðfestu það sem hann héldi fram. Frá klukkan 18:00 þann 28. október til klukkan 8:00 þann 29. október hafi verið venjulegt vetrarveður:

„Sem búast má við á þessum árstíma, smá snjófjúk.“

Það væri ekkert í þessum veðurskýrslum sem benti til að þessi mikli massi af frosnum snjó, sem hafi verið á flugvélinni, hafi fallið á hana eftir klukkan 18 þann 28. október:

„Af einhverjum ástæðum ákvað Icelandair að bíða með að þrífa ákveðinn fjölda flugvéla þar til eftir að farþegar voru komnir um borð. Og þar sem flugvélin sem ég var í átti ekki að fljúga til baka sama dag, var hún síðust í röðinni.“

Afísing

Í niðurstöðu Samgöngustofu um bótakröfu farþegans segir að sérfræðingur stofnunarinnar hafi verið beðinn um að leggja mat á framlögð veðurgögn Icalandair til að skera úr um hvort að veðuraðstæður í Keflavík þann 28. október 2025 hafi verið með þeim hætti að forsvaranlegt hafi verið að seinka umræddu flugi næsta dag. Sérfræðingurinn hafi staðfesti gögnin, sem og að afísing flugvélar geti ekki hafist fyrr en farþegar séu komnir um borð þar sem ekki megi líða of langur tími milli afísingar og flugtaks svo unnt sé að að undirbúa flugvélina fyrir áætlaða brottför.

Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem komi fram í svari sérfræðingsins og með tilliti til þess að seinkun hafi verið á öllu brottfararflugi frá Keflavík þennan morgun sé það mat stofnunarinnar að seinkun á fluginu  falli í flokk óviðráðanlegra aðstæðna í skilningi Evrópureglugerðar um staðlaðar skaðabætur til flugfarþega. Icelandair hafi sýnt fram á að félagið hafi lagt sig fram við að takmarka afleiðingar af hinum óviðráðanlegu aðstæðum eftir bestu getu. Sé kröfu farþegans um staðlaðar skaðabætur á grundvelli reglugerðarinnar því hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn