
Hún segir mikilvægt að foreldrar og ungmenni geri sér grein fyrir því að hættan geti leynst víða.
Atvikið átti sér stað í borginni Hull í apríl síðastliðnum þegar systurnar Scarlett og Olivia Bywood hittu hóp stúlkna úr öðrum borgarhluta í almenningsgarði. Þar fengu þær rafsígarettu sem þær töldu vera venjulega. Aðeins nokkrum mínútum síðar misstu báðar meðvitund.
„Þær héldu bara að þetta væri venjuleg rafsígaretta. Tíu mínútum síðar gerðist þetta,“ sagði móðir þeirra, Kay Fores, í viðtali við The Sun.
Önnur stúlknanna byrjaði að froðufella og báðar lágu þær meðvitundarlausar í garðinum. Örvænting virðist hafa gripið um sig meðal stúlknanna sem gáfu þeim veipið því þær yfirgáfu vettvang án þess að kalla eftir aðstoð á meðan systurnar lágu hjálparvana.
Til allrar lukku kom vegfarandi að systrunum og kallaði hann eftir aðstoð. Segir Kay að dætur hennar hefðu líklega ekki lifað af ef þær hefðu fundist mikið seinna.
Kay rifjar upp að óhugnanleg sjón hafi mætt henni þegar hún kom á Hull Royal Infirmary-sjúkrahúsið, en þar sá hún dætur sínar meðvitundarlausar þar sem þær voru tengdar við allskonar slöngur.
„Ég var í vinnunni og næstu mínútu fæ ég símtal um að börnin mín hafi tekið of stóran skammt,“ sagði hún. Hún lýsti biðinni eftir því að stúlkurnar vöknuðu sem hreinni martröð.
„Það tók sex klukkustundir fyrir þær að vakna. Þetta var algjörlega hræðilegt.“
Blóðrannsóknir leiddu síðar í ljós að rafsígarettan hafði verið blönduð MDMA og spice sem er manngert efni sem líkir eftir vímuáhrifum kannabisefna. Efnið getur verið hættulegt og haft ófyrirsjáanleg áhrif.
Stúlkurnar voru útskrifaðar af sjúkrahúsi daginn eftir en mundu ekkert eftir atvikinu.
Kay segir að reynslan hafi gjörbreytt afstöðu dætra sinna til rafsígarettna.
„Ég held að þær muni aldrei nota veip aftur,“ segir hún og bætir við að hún vilji segja sögu dætra sinna opinberlega til að vara foreldra og ungmenni við.
Áhyggjur af rafsígarettum sem innihalda ólögleg efni hafa aukist í Bretlandi undanfarin ár. Samkvæmt rannsókn frá University of Bath sem birt var árið 2025 innihélt allt að fjórðungur rafsígaretta sem gerðar voru upptækar í framhaldsskólum á ákveðnum svæðum spice eða önnur hættuleg efni.