

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri notaði innkaupakort sem hún fær frá borginni meðal annars til að kaupa áfengi. Hún notaði einnig kortið mun meira en forverar hennar í embættinu á þessu kjörtímabili.
RÚV greinir frá þessu.
Heiða Björg hefur verið borgarstjóri síðan í febrúar 2025 og hefur á þessum tíma eytt 753.000 krónum með kortinu í ýmislegt bæði erlendis og hérlendis til dæmis á veitingahúsum. Meðal þess sem Heiða Björg greiddi fyrir með kortinu er áfengi en til þess að nota innkaupakort frá borginni til slíks þarf sérstaka heimild og ekki liggur fyrir hvort borgarstjórinn hafi aflað sér slíkar heimildar.
Fram kemur að Einar Þorsteinsson sem var borgarstjóri frá janúar 2024 til janúar 2025 hafi eytt á þessum tíma 378.000 krónum með kortinu og þá eingöngu hótel og leigubíla erlendis. Dagur B. Eggertsson sem var borgarstjóri frá upphafi kjörtímabilsins og þar til Einar tók við notaði kortið hins vegar aldrei.