

Nóg hefur verið um að vera í dag hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en meðal verkefna sem komu inn á hennar borð var efnaleki hjá fyrirtæki í Hafnarfirði.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Í miðborg Reykjavíkur var aðilum vísað út af hóteli vegna neyslu á fíkniefnum og innbrot framið í íbúð en síðarnefnda málið er í rannsókn.
Óvelkominn aðili neitaði að yfirgefa heimili í miðborginni og var vísað út af lögreglu.
Í Hafnarfirði varð efnaleki hjá fyrirtæki þegar efnum var blandað saman við tiltekt. Hiti og reykur myndaðist en ekki urðu slys á fólki. Var lekinn afgreiddur af slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Í Hafnarfirði glefsaði sömuleiðis hundur í barn á hjóli. Barnið hlaut sár á fæti sem ekki blæddi úr.
Innbrot var framið í bifreið í Garðabæ og radarvara stolið.
Tilkynnt var um sofandi aðila utandyra í Breiðholti en viðkomandi hafði að sögn tilkynnanda verið hjólandi nokkru áður. Reyndist viðkomandi vera undir áhrifum fíkniefna og var færður á sjúkrahús til skoðunar.
Tilkynnt var um sofandi aðila í sameign í Breiðholti og var sá vakinn af lögreglu.
Stolið var úr verslun í Kópavogi.
Loks getur lögreglan þess að kviknað hafi í grilli á Kjalarnesi en skemmdir verið óverulegar.