fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Leigjandi krafðist bóta vegna glataðra muna – Sakaður á móti um ónæði og að ganga um nakinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 17:30

Kærunefnd húsamála heyrir undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Mynd: Stjórnarráð Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfum manns sem leigði herbergi. Krafðist hann endurgreiðslu á leigu og tryggingarfé auka bóta vegna muna í hans eigu sem hann sagði leigusali hafa fargað. Sakaði leigjandinn einnig starfsmann á vegum leigusalans um að hafa stolið fötum í hans eigu. Leigusalinn sakaði á móti manninn um að hafa ítrekað valdið öðrum leigjendum, sem leigðu herbergi á sama stað, ítrekuðu ónæði með hávaða og að hafa sömuleiðis gengið nakinn um sameiginlegt rými.

Ekki kemur fram í hvaða sveitarfélagi þetta átti sér stað..

Leigjandinn gerði leigusamning við leigusalann í september 2022 um leigu á herbergi. Hann flutti síðan í annað herbergi í eigu leigusalans en leigjandinn flutti út úr því á síðasta ári en krafðist endurgreiðslu á leigu vegna júnímánaðar, 85.000 krónur. Auk þess fór hann fram á endurgreiðslu tryggingafjár, sem nam leigu fyrir einn mánuð, og bóta fyrir muni í hans eigu sem hann sagði leigusalann hafa fargað.

Leigusalinn féllst á endurgreiðslu tryggingafjárins en hafnaði öðrum kröfum leigjandans.

Leigjandinn sagði í sinni kæru að í húsnæðinu þar sem fyrra herbergið var hafi hegðun og umgengni annarra íbúa verið verulega ábótavant. Í seinna herberginu sem hann hafi tekið á leigu hafi verið mygla í eldhúsi, „ryðgað“ baðkar og fleira. Þar hafi einnig verið ónæði af öðrum íbúum sem hafi reykt og drukkið áfengi langt fram eftir nóttu og hlustað á háværa tónlist í tvær vikur í hverjum mánuði. Einn af þeim hafi ráðist á hann en hann hafi varist því.

Ítrekað

Leigjandinn sagðist hafa farið af landi brott í tannaðgerð áður en leigutímanum á seinna herberginu lauk en ekki komist til baka í tæka tíð til að tæma herbergið. Hann hafi beðið leigusalann um að geyma dótið hans þar sem hann þyrfti að sinna háskólanámi sínu þegar hann kæmi til baka. Þegar hann hafi komið til baka hafi hann séð einn af starfsmönnum leigusalans í fötunum hans, en sá maður hafi logið til um að eiga þau. Sagðist leigjandinn hafa þurft á munum sínum að halda fyrir útskrift úr háskóla, en þeim hafi verið stolið. Hann hafi átt að flytja út 15. júní en ekki getað það vegna tannaðgerðarinnar og veikinda föður síns.

Í andsvörum sínum sagði leigusalinn að fljótlega eftir að leigjandinn fór að leigja fyrra herbergið hafi farið að berast ítrekaðar kvartanir frá öðrum leigjendum vegna framferðis hans. Hafi þeir kvartað yfir að leigjandinn hafi gengið um nakinn í sameiginlegum rýmum, sem hafi valdið öðrum leigjendum óþægindum og verið í andstöðu við reglur um nábýlisrétt.

Þá hafi leigjandinn talið sig hafa yfirráð yfir sameiginlegum rýmum þrátt fyrir að allir leigjendur hafi haft jafnan afnotarétt. Þannig hafi hann með háttsemi sinni raskað lögmætum hagsmunum annarra leigjenda, í andstöðu við reglur um nábýlisrétt. Samkvæmt meginreglum nábýlisréttar beri að gæta hófs í nýtingu fasteignar og forðast að valda öðrum óþægindum, röskun eða tjóni umfram það sem teljist eðlilegt í sambýli.

Áminning

Sagðist leigusalinn hafa ítrekað þurft að hafa afskipti af leigjandanum vegna framkomu hans og umgengni. Hafi leigjandinn verið áminntur sérstaklega og því komið skýrt á framfæri að batnaði ástandið ekki gæti það leitt til uppsagnar á leigusamningi.

Leigusamningi hafi loks verið sagt upp en leigjandinn ekki gert sig líklegan til að fara. Þegar hafi komið að því að bera hann út hafi hann lofað bót og betrun. Loks hafi hann fengið að flytja sig yfir í  annað herbergi í eigu leigusalans en þar hafi allt fljótlega farið í sama farið og farið að bera á kvörtunum annarra íbúa vegna ónæðis og óæskilegrar framkomu.

Hafi leigjandanum verið tilkynnt að þar sem íbúðin, þar sem herbergið er, hafi verið seld þyrft hann að tæma það og þrífa. Það hafi hann ekki gert og skilið eftir eigur sínar og sorp og sagst ekki vera á landinu. Sorpi og því sem var mengað hafi verið hent en það sem eftir var sett í geymslu.

Leigjandinn hafnaði því að hafa gengið nakinn um sameiginleg rými. Hann hafi alltaf notað handklæði þegar hann hafi farið á baðherbergið en gleymt því í eitt skipti. Leigusalinn hafi ekki skilað öllum eigum hans þegar hann hafi ætlað að sækja þær.

Ósannað

Kærunefnd húsamála segir í sinni niðurstöðu að leigjandinn hafi upplýst nefndina um að hann hafi yfirgefið seinna herbergið 4. júní 2025 vegna tannaðgerðar erlendis en ætlað að koma aftur fyrir 15. júní til að tæma það en ekki getað það vegna afleiðingar aðgerðarinnar. Hafi hann komið til landsins í byrjun júlí.

Leigusalinn sagði samkomulag hafa verið um leigulok 1. júní en að leigjandinn hafi þá hvorki verið farinn úr herberginu né verið búinn að þrífa það og þá hafi kostnaður vegna geymslu búslóðar leigjandans fallið á leigusalann. Nefndin telur að leigjandinn verði að bera hallann af því að hafa ekki náð að tæma og skila herberginu í samræmi við samkomulagið. Hafi honum því borið að greiða leigu vegna júnímánaðar og sé kröfu hans um endurgreiðslu leigunnar því hafnað.

Hvað varðar kröfu um bætur fyrir eigur leigjandans sem hann segir leigusalann hafa hent segir nefndin að leigjandinn hafi ekki stutt þessa kröfu með neinum gögnum og því verði að hafna henni.

Leigjandinn, sem sakaður var um ítrekað ónæði og ósæmilega hegðun gagnvart nágrönnum sínum með því að ganga um nakinn, hafði því ekki erindi sem erfiði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA
Fréttir
Í gær

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Í gær

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg