fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 14:30

Myndin sem Lögreglan á Vestfjörðum birti. Skjáskot/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Vestfjörðum birti gervigreindarmynd til þess að auglýsa reglubundið eftirlit með skotvopnamálum. Lögreglan hefur lokað á athugasemdir með færslunni en hún hefur áður verið gagnrýnd fyrir notkun gervigreindarmynda.

Í færslu Lögreglunnar á Vestfjörðum á samfélagsmiðlum í gær var notuð gervigreindarmynd. Myndin sýnir þrjár persónur sem eiga að vera íslenskir lögregluþjónar handleika skotvopn. Í bakgrunni má sjá byssuskáp.

Augljóst er að um gervigreindarmynd sé að ræða, enda stafsetningarvillur á búningum lögregluþjónanna og allt annað merki. Þá er illgreinanlegur texti á möppu sem einn þeirra heldur á.

Færslan er til að minna skotvopnaeigendur á reglubundið eftirlit lögreglunnar og breytingar sem urðu á vopnalögum árið 2024.

Vekur athygli að lögreglan hefur lokað á athugasemdir við færsluna.

Lögreglan hefur áður verið gagnrýnd fyrir notkun gervigreindarmynda. Til dæmis Lögreglan á Suðurnesjum sem birti gervigreindarmynd af brosandi lögregluþjóni í kringum hóp skólabarna árið 2024. Sú mynd var jafn vel verri en sú sem Lögreglan á Vestfjörðum birti og andlit sumra barnanna bjöguð.

„Hversu fokking dystópískt að lögreglan sé að pósta AI myndum til að sýna hversu vinaleg og barnvæn hún er,“ sagði einn gagnrýninn netverji á samfélagsmiðlum eftir þá birtingu eins og Mannlíf greindi frá í frétt á sínum tíma.

Var lögreglan gagnrýnd fyrir að nota búnað sem steli höfundarréttarvörðu efni og persónuverndarlög.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Íslenskir fjölmiðlar séu í hættu og RÚV hafi ekkert forskot

Íslenskir fjölmiðlar séu í hættu og RÚV hafi ekkert forskot
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni