
Þróttur vann þægilegan 0-3 útisigur á Fram í Bestu deild kvenna í kvöld.
Sigríður Guðmundsdóttir, Jelena Tinna Kujundzic og Þórdís Nanna Ágústsdóttir skoruðu mörk leiksins.
Þróttur er með sex stig eftir þrjá leiki en Fram er án stiga og gæti langt sumar verið framundan á þeim bænum.
Markaskorarar fengnir af Fótbolta.net