fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í 20 ár

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 20:54

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal tók á móti Atletico Madrid í kvöld í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Þeim fyrri lauk með 1-1 jafntefli á Spáni.

Arsenal var betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og það skilaði sér í marki Bukayo Saka undir lok hans. Þá fylgdi hann eftir skoti Leandro Trossard.

Seinni hálfleikur var opnari í báðar áttir og Atletico Madrid átti nokkur álitleg áhlaup þegar leið á hann. Þeim tókst þó ekki að ógna forystunni að alvöru og lokatölur urðu 1-0, samanlagt 2-1.

Arsenal fer þar með til Búdapest og mætir þar Bayern Munchen eða Paris Saint-Germain. Síðarnefnda liðið leiðir einvígið 5-4 eftir fyrri leikinn þar.

Þetta verður fyrsti úrslitaleikur Arsenal í Meistaradeildinni síðan 2006, þegar liðið tapaði 2-1 gegn Barcelona. Það var jafnframt þeirra eini úrslitaleikur í keppninni til þessa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Flugeldasýning fyrir utan hótel Atletico í London í nótt

Flugeldasýning fyrir utan hótel Atletico í London í nótt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina
433Sport
Í gær

Reiði yfir HM boltanum – Þeir sem framleiða boltann geta aldrei keypt sér hann

Reiði yfir HM boltanum – Þeir sem framleiða boltann geta aldrei keypt sér hann
433Sport
Í gær

Fyrrum samherjar takast harkalega á – Rifjar upp atvikið þegar hann hrækti á unga stelpu

Fyrrum samherjar takast harkalega á – Rifjar upp atvikið þegar hann hrækti á unga stelpu