

Gary Neville telur að Manchester United ætti að íhuga að selja Mason Mount til að afla fjármagns fyrir nauðsynlega enduruppbyggingu á liðinu í sumar.
United tryggði sér sæti í Meistaradeildinni með 3-2 sigri á Liverpool á sunnudag og hefur Michael Carrick stýrt liðinu til tíu sigra í fyrstu fjórtán leikjum sínum sem bráðabirgðastjóri. Hann er nú talinn líklegastur til að fá starfið til frambúðar í sumar.
Neville segir þó að hópurinn þurfi mikla endurnýjun ef United ætlar sér að berjast á öllum vígstöðvum.
„Hann veit að hann þarf að endurbyggja vörnina og miðjuna. Ef United ætlar að spila 4-4-2 þarf liðið sérstaka leikmenn á miðjunni og varnarmenn sem ráða við einn gegn einum stöður,“ sagði Neville.

Að hans mati þarf félagið vinstri bakvörð, miðvörð og tvo miðjumenn hið minnsta.
Neville segir jafnframt að sala á Mount gæti opnað dyr fyrir enn eina styrkinguna. Mount kom frá Chelsea árið 2023 fyrir 60 milljónir punda en hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla og aðeins spilað 69 leiki fyrir félagið.
„Ef þú getur skipt Mason Mount út fyrir fjölhæfari leikmann sem getur leyst fleiri stöður þá myndi ég skoða það,“ sagði Neville.
Hann ítrekaði að þessar fjórar stöður væru forgangsmál og að leikmennirnir sem kæmu inn þyrftu að vera í hæsta gæðaflokki.