

Jamie Carragher lét Chelsea heyra það eftir niðurlægjandi 3-1 tap liðsins gegn Nottingham Forest á Stamford Bridge í gær.
Forest, sem er í fallbaráttu og stillti upp mikið breyttu liði með Evrópuleik gegn Aston Villa í huga, vann þægilegan sigur gegn Chelsea sem tapaði þar með sínum sjötta deildarleik í röð.
Tapinu fylgdi það einnig að möguleikar Chelsea á sæti í Meistaradeildinni eru nú endanlega úr sögunni. Liðið situr í níunda sæti með 48 stig og er nær Forest í 16. sæti en Aston Villa í fimmta sæti.
Carragher var afar harðorður í lýsingu sinni á stöðu félagsins. „Þetta er skelfilegt og byrjar á toppnum. Það voru fimm eða sex toppleikmenn inni á vellinum í dag og þeir töpuðu fyrir varaliði Nottingham Forest,“ sagði hann hjá Sky Sports.
„Fyrir innan við ári síðan voru þeir að valta yfir Paris Saint-Germain. Nú er engin tenging milli leikmanna og þjálfara, né leikmanna og stuðningsmanna.“
Carragher sagði jafnframt að Chelsea liti út eins og „brotinn fótboltaklúbbur“ og bætti við að félagið sýndi að peningar einir og sér dygðu ekki til árangurs.
Bráðabirgðastjórinn Calum McFarlane tók undir gagnrýnina og kallaði frammistöðu sinna manna „algjörlega óásættanlega“ eftir að liðið lenti 2-0 undir á fyrstu 15 mínútunum.