

Real Madrid hefur sett Unai Emery á lista sinn yfir mögulega næsta knattspyrnustjóra félagsins. Jose Mourinho er einnig mikið orðaður við starfið.
Emery, sem hefur náð frábærum árangri með Aston Villa, er sagður vera einn þeirra sem koma til greina ef breytingar verða á stjórastólnum hjá Madrídingum.
Það gæti þó reynst erfitt fyrir spænska stórveldið að fá Emery þar sem hann er bundinn Aston Villa til sumarsins 2029 samkvæmt núgildandi samningi.
Emery hefur umbreytt Villa frá komu sinni og komið félaginu í fremstu röð í ensku úrvalsdeildinni, sem hefur vakið athygli stærstu félaga Evrópu.
Real Madrid er því sagt fylgjast grannt með stöðu mála, þó engar formlegar viðræður hafi átt sér stað á þessu stigi.