fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 18:30

Mynd: Unsplash

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir kannast við áskorunina um að vilja borða hollan mat en í annríki hversdagsins er það erfitt því það er margt sem freistar og tíminn er oft af skornum skammti. Það getur því verið erfitt að halda sig við hollan mat þrátt fyrir góðan ásetning.

Margir leita því stöðugt eftir hinu fullkomna mataræði en kannski er mesta styrkleikann ekki að finna í fjölbreyttu fæði, heldur í endurtekningu.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að einfaldar og fastar venjur geti haft meiri áhrif en ætla megi við fyrstu sýn.

Vísindamenn við Drexel University í Bandaríkjunum rannsökuðu áhrif daglegra neysluvenja á þyngdartap. Rannsókn þeirra hefur verið birt í vísindaritinu Health Psychology. Í henni var fylgst með rúmlega 100 fullorðnum sem tóku þátt í skipulagðri megrunaráætlun.

Þátttakendur, sem borðuðu sama matinn og millimál í langan tíma, léttust almennt meira en þeir sem borðuðu fjölbreyttan mat frá degi til dags.

Vísindamennirnir segja að fastar rútínur geti gert fólki auðveldar fyrir við að halda sig við hollan lífsstíl. Science Alert skýrir frá þessu.

Þegar máltíðirnar verða fyrirsjáanlegar, þarf ekki að taka eins margar ákvarðanir og það verður auðveldara að hafa stjórn á hitaeininganeyslunni.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós að þeir sem voru með jafna hitaeininganeyslu á milli daga, náðu betri árangri við að léttast en þeir sem lifðu við meiri sveiflur í hitaeininganeyslunni.

Vísindamennirnir benda á að vegna hins mikla úrvals matar, sem við búum við, geti verið erfitt að viðhalda stöðugu mataræði. Þeir segja að það geti hjálpað sumum að halda sig við freka fábreytt fæði en mjög fjölbreytt. Um leið benda þeir á að í rannsókninni var ekki lagt mat á gæði matarins en það þýðir að þyngdartap byggist ekki endilega á hollara mataræði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Í gær

Líkfundur á Kanaríeyjum tengist mannshvarfi árið 2024

Líkfundur á Kanaríeyjum tengist mannshvarfi árið 2024
Pressan
Fyrir 3 dögum

Maður frá Texas flaug til Ítalíu og óskaði eftir hæli vegna yfirvofandi réttarmorðs – Er ákærður fyrir hrottalegt brot

Maður frá Texas flaug til Ítalíu og óskaði eftir hæli vegna yfirvofandi réttarmorðs – Er ákærður fyrir hrottalegt brot
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“