fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 19:00

Situr þú of mikið?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist nú ekki vera hættulegt að sitja enda gerum við það daglega. En klukkustundirnar fyrir framan tölvuna, í sófanum eða í bílnum geta haft alvarleg áhrif á bæði andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Langvarandi kyrrseta eykur líkurnar á lífsstílssjúkdómum eins og sykursýki 2, hjartasjúkdómum og ýmsum tegundum krabbameins, þar á meðal ristil-, brjósta- og leghálskrabbameini. Þeim mun lengur sem þú situr dag hvern, þeim mun meiri eru líkurnar.

Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl langvarandi setu og of hás blóðþrýstings.

Að sitja lengi hefur áhrif á blóðflæðið, sérstaklega í fótunum. Það getur valdið því að fæturnir bólgna og hættan á blóðtöppum eykst, sérstaklega af þú situr í sömu stellingunni án þess að hreyfa þig.

Líkaminn byrjar að þjást því eftir aðeins tveggja klukkustunda setu getur maður fundið fyrir óþægindum í hnakka, öxlum, baki og lærum. Ástæðan er að álagið á vöðva og liði er einhæft og stöðugt.

Langvarandi hreyfingarleysi getur dregið úr getu líkamans til að breyta mat í orku. Efnaskiptin verða hægari og líkaminn brennir færri hitaeiningum. Þetta eykur líkurnar á offitu og insúlínviðnámi.

Kyrrseta hefur áhrif á vöðva og bein í hnakka, hnjám, lærum og lendinni. Þetta getur valdið krónískum verkjum og skertri hreyfigetu ef þetta stendur lengi yfir.

Fólk, sem situr mikið, hefur sagt að kyrrsetan dragi úr andlegri vellíðan þess og getu til að leysa vandamál á skapandi hátt. Samhengi hefur sést á milli kyrrsetu lífsstíls og þunglyndiseinkenna.

En hvenær byrjar setan að vera hættuleg?

Situr þú minna en 4 klukkustundir á dag? – Ef svo er, þá er hættan á heilsufarsvandamálum metin lítil. En þetta þýðir þó ekki að þú eigir að hunsa líkamlega hreyfingu en þú ert samt sem áður í betri stöðu en flestir.

Situr þú á milli 4-8 klukkustundir á dag? – Margt skrifstofufólk og námsmenn falla undir þennan tímaramma. Hættan á sjúkdómum byrjar að aukast í þessum flokki, sérstaklega ef þú bætir þetta ekki upp með hreyfingu yfir daginn.

Situr þú á milli 8-11 klukkustundir á dag? – Þegar þú nálgast 8 klukkustundir á dag eða ferð yfir þær, þá er hætta á að þú þróir með þér alvarlega sjúkdóma á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki 2. Það er mikilvægt að taka reglulegar pásur og hreyfa sig.

Situr þú meira en 11 klukkustundir á dag? – Þetta er hættulegasti flokkurinn. Langvarandi hreyfingarleysi í svona langan tíma tengist hárri dánartíðni og krónískum sjúkdómum. Það þarf virkar aðgerðir til að losna úr þessu mynstri, bæði fyrir andlega og líkamlega heilsu þína.

Byggt á umföllun Medical News Today.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Í gær

Líkfundur á Kanaríeyjum tengist mannshvarfi árið 2024

Líkfundur á Kanaríeyjum tengist mannshvarfi árið 2024
Pressan
Fyrir 3 dögum

Maður frá Texas flaug til Ítalíu og óskaði eftir hæli vegna yfirvofandi réttarmorðs – Er ákærður fyrir hrottalegt brot

Maður frá Texas flaug til Ítalíu og óskaði eftir hæli vegna yfirvofandi réttarmorðs – Er ákærður fyrir hrottalegt brot
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“