
Viðreisn fengi þrjá borgarfulltrúa kjörna og væri í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun í borginni ef úrslit kosninganna yrðu í samræmi við nýja könnun Maskínu.
Viðreisn gæti myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki með samtals 12 borgarfulltrúa eða þá valið samstarf við vinstri flokka og myndað 12 manna meirihluta með Samfylkingu, Vinstrinu og Pírötum.
Orðið á götunni er að í þessari lykilstöðu gæti jafnvel komið upp sú staða að Viðreisn gæti krafist þess að fá stöðu borgarstjóra i sinn hlut og haft sterk rök fyrir því. Björg Magnúsdóttir yrði þá glæsilegur borgarstjóri.
Samkvæmt þessari könnun næði Sjálfstæðisflokkur sjö mönnum mjög naumlega en Samfylking fengi fimm borgarfulltrúa kjörna, eins og í síðustu kosningum, en stutt væri í þann sjötta. Fylgi þessara flokka er það sama og 2022, 25 og 21 prósent.
Viðreisn mælist þriðji flokkurinn að stærð með 12 prósent og þrjá menn kjörna, Vinstrið næði einnig þremur borgarfulltrúum, Miðflokkurinn tveimur en Píratar, Framsókn og Sósíalistar fengju einn mann hver.
Orðið á götunni er að erfitt sé að sjá fyrir sér starfhæfan meirihluta í borginni án Viðreisnar verði niðurstöður kosninganna eitthvað í líkingu við þessa könnun.