fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Hannes Valle hefur játað svívirðileg brot

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 14:00

Hannes Valle Þorsteinsson. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld yfir Hannes Valle Þorsteinssyni, fyrrverandi starfsmanni leikskólans Múlaborgar, sem ákærður er fyrir tvö kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum, hafa staðið yfir í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þinghald er lokað og liggja engar upplýsingar fyrir um það sem komið  hefur fram við réttarhöldin.

Sjá einnig: Réttarhöld yfir Hannes Valle framundan

Hannes hefur hins vegar í lögregluyfirheyrslum játað sök að hluta. Vísir fer yfir játningar hans í frétt í dag og byggir á upplýsingum úr gæsluvarðhaldsúrskurðum.

Kemur þar fram að Hannes játar að hafa sett getnaðarlim sinn á milli læra barnsins og viðhaft samfarahreyfingar, eftir að hafa dregið niður buxur stúlkunnar þar sem hún lá sofandi í hvíldarherbergi leikskólans.

Í annarri yfirheyrslu játaði hann að hafa tekið stúlkuna upp á meðan hún var buxnalaus og „snúið henni við þannig hún sneri rassinum að klofi hans og hafi hann gert „hump“ hreyfingar í nokkrar sekúndur.“

Játningar Hannesar eru sagðar vera í samræmi við frásögn barnsins af atvikunum.

Dómur yfir lok maí

Búast má við því að dómur verði kveðinn upp yfir Hannesi seinnihluta maímánaðar, en dóm skal kveða upp innan við fjórum vikum frá aðalmeðferð.

Hannes gæti verið ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot á leikskólanum síðar því ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvarðanir um að fella niður rannsókn eða ákæra ekki gegn honum í nokkrum málum sem tilkynnt voru til lögreglu. Hefur ríkissaksóknari fyrirskipað lögreglu að rannsaka þrjú af þessum málum upp á nýtt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt