
Aron Sigurðarson hefur verið besti leikmaður fyrstu fjögurra umferða Bestu deildarinnar ef horft er í alla tölfræðiþætti.
Fotmob heldur utan um tölfræðina í Bestu deildinni og skorar Aron þar hæst í fyrstu umferðunum. Það er enginn furða, Aron hefur verið ótrúlegur fyrir topplið KR, er kominn með fimm mörk og þrjár stoðsendingar.

Elías Már Ómarsson er í öðru sæti listans, en hann hefur að mörgu leyti komið á óvart með Víkingi miðað við umræðuna um hann á undirbúningstímabilinu. Sóknarmaðurinn hefur verið algjörlega frábær og er með fimm mörk.
Andri Rúnar Bjarnason í Stjörnunni, Stefan Ljubicic í nýliðum Keflavíkur og Tryggvi Hrafn Haraldsson í Val eru einnig í efstu fimm á lista Fotmob.
Listinn í heild
1. Aron Sigurðarson (KR) – 8,86
2. Elías Már Ómarsson (Víkingur) – 8,55
3. Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan) 8,44
4. Stefan Ljubicic (Keflavík) – 8,07
5. Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) – 8,05
Einkunnir eru frá 1-10