fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“

433
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ÍBV hefur verið í miklum vandræðum í Bestu deild karla það sem af er. Mæting stuðningsmanna á völlinn hefur þá verið dræm.

Eyjamenn eru aðeins með eitt stig og markatöluna 5:14 eftir fjóra leiki. Liðið var til umræðu í þættinum Mín Skoðun með Valtý Birni. Þar var komið inn á mætinguna.

„Það hjálpar ekki til að mætingin á leikina er gjörsamlega fyrir neðan allar hellur. Það er allt að því pínlegt að horfa upp á þetta,“ sagði Kristinn Kjærnested í þættinum.

„Maður er bara svekktur með að fólkið í Eyjum skuli ekki reyna að mæta á völlinn og styðja sína menn. Það er nánast hægt að telja áhorfendurna þarna á fingrum annarrar handar.“

Valtýr tók undir þessi orð. „Ég er sammála því. Ég hef tekið eftir þessu. Þetta er ekki það sem maður þekkir úr Eyjum.“

Eyjamenn mæta Breiðabliki í næsta leik á sunnudag og verður fróðlegt að sjá hvort liðið og stuðningsmenn bæti sitt ráð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum