fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar tafir hafa orðið á ferðum Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum undanfarið og veldur þar annars vegar ástand skipsins og hins vegar ónóg sjódýpt í Landeyjahöfn.

Sigling Herjólfs frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöld tók tæpar sjö klukkustundi. RÚV greinir frá. Kom skipið til hafnar í Vestmannaeyjum  um kl. hálfþrjú í nótt. Annar rafmótor Herjólfs bilaði fyrir hálfum mánuði og vegna bilunarinnar og sjóalags gat skipið aðeins siglt á um fimm til sex sjómílna hraða í gærkvöld.

Erlingur Guðbjörnsson greinir frá því að sonur hans, sem keppir í handbolta, hafi þurft að vera samtals 11 klukkutíma í siglingu vegna keppnisferðar. Hann segir á segir á Facebook-síðu sinni:

„Ég sit hér kl 01.00 að skrifa þetta hér, að bíða eftir syni mínum 15 ára, sem fór í morgun með Herjólfi til að keppa í handbolta. Ferðin í morgun tók c.a 4 tíma en ferðin heim mun taka hátt í 7 tíma. Hátt í 11 tíma ferðalag. Skipið gengur núna á rúmum 7 mílum en ætti við bestu aðstæður að ganga 13-14 mílur. Þ.e ef allt væri í lagi. Þetta er ástand sem við sem búum hér í Vestmannaeyjum getum ekki sætt okkur lengur við. Það eru endalausir biðlistar og erfitt að taka skyndiákvarðanir að fara í bæinn. Maður þarf að panta með margra daga fyrirvara ef maður ætlar að vera öruggur með ferð. Þetta hefur skapað mikið álag á Íbúa, fyritæki og starfsfólk Herjólfs. Ég vil hér nota tækifærið að þakka þessu frábæra fólki sem starfar hjá Herjólfi og staðið vaktina til að koma okkur á milli lands og eyja. Þau eiga stórt hrós skilið.

Nú þarf bara eitthvað að fara að gerast. Þetta ástand er hreinlega ekki í boði lengur. Hvorki fyrir okkur íbúana, fyritækin né starfsfólk Herjólfs.“

Upplýsingaleysi og biðlistar

Erlingur segir í samtali við DV að Vestmannaeyingar séu orðnir leiðir á upplýsingaleysi og biðlistum. „Það hefur vissulega verið þannig veður að það hefur ekki verið hægt að gera neitt varðandi ástandið í Landeyjum en vandinn er sá að það ekkert varaskip á móti þessu. Núna er þessi bilaður, hann er að sigla á einni skrúfu, það er bara ákveðið öryggi í því að hafa tvær skrúfur.“

Erlingur segir vandræðaástand framundan vegna viðburða sem eru á döfinni og fyrirsjáanlegra tafa og vandræða.

„Svo er að detta í sumar, það er Puffin Run hlaupið um helgina, metþátttaka í skráningu. Svo eru fullt af fyrirtækjum hér sem eru að tapa á þessu, bæði fyrirtæki í ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Ég þarf að komast upp á land á fimmtudaginn, maður er á biðlista, það eru orðnir biðlistar í allar ferðir, jafnvel allt upp í 30 bílar á biðlista, sem er ekki gott.“

Undirskriftalisti vegna Landeyjahafnar

Undirskriftalisti hefur verið birtur á island.is þar sem krafist er úrbóta vegna ástandsins í Landeyjahöfn. Þar segir:

„Ófremdarástandið sem nú ríkir í Landeyjahöfn er orðið alvarlegt áhyggjuefni fyrir bæði íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Orsökin er ónógt dýpi í höfninni, sem hefur leitt til þess að Herjólfur getur ekki siglt tíl og frá Landeyjahöfn. Þetta hefur í för með sér ófyrirsjáanleika í samgöngum sem bitnar beint á daglegu lífi fólks.

Fyrir íbúa Vestmannaeyja eru reglulegar og áreiðanlegar samgöngur lífsnauðsyn. Þegar siglingar raskast þurfa íbúar að fara í lengri siglingar til og frá Þorlákshöfn. Slíkt ferðalag veldur töfum og auknum kostnaði.

Efnahagslegu áhrifin eru ekki síður alvarleg. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum, t.d. í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, reiða sig á skilvirkar flutningsleiðir. Þegar siglingar raskast tefjast vöruflutningar, sem getur leitt til taps á tekjum, aukins rekstrarkostnaðar og skerts samkeppnishæfis.

Því krefjumst við þess að ráðamenn landsins bregðist við ástandinu strax og fái dæluskip til landsins sem ræður við verkefnið.“

Stjórnarþingmaður stígur fram

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segir að ástandið í samgöngumálum til Vestmannaeyja sé óásættanlegt. Hún segir að stjórnarþingmenn séu að beita sér í málinu þó ekki fari það hátt. Ása birti eftirfarandi Facebook-færslu um málið:

„Ástandið í samgöngumálum til Vestmannaeyja er algjörlega óásættanlegt. Ef það fellur aurflóð á veg þá er mætt með viðeigandi búnað til að moka í burtu flóðið, það sama þarf að gerast í Landeyjahöfn og erfitt að sjá að hægt sé að bíða eftir að öflugra sanddæluskip komi í haust.

Við skiljum að íbúar í Vestmannaeyjum eru búnir að fá nóg enda áralangur vandi sem blasir við í þessum málum. Ég heyri líka að það er kallað eftir viðbrögðum okkar þingmanna stjórnarflokkanna sem ég skil en vil segja í því samhengi að við erum að beita okkur í þessu máli þó svo við séum ekki að hrópa á torgum. Við höfum beint aðgengi að ráðherrum og nýtum okkur það vitandi að það er líklegra til að bera árangur heldur en gildishlaðnar yfirlýsingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjúkraþjálfari sakaður um stórtæk fjársvik – Gæti átt þungan fangelsisdóm yfir höfði

Sjúkraþjálfari sakaður um stórtæk fjársvik – Gæti átt þungan fangelsisdóm yfir höfði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“
Fréttir
Í gær

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Í gær

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kennari tjáir sig um vanda drengja – „Skólakerfið okkar hvílir á fornri hugmyndafræði“

Kennari tjáir sig um vanda drengja – „Skólakerfið okkar hvílir á fornri hugmyndafræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kanóna í Sjálfstæðisflokknum rýfur þögnina – „Á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum“

Kanóna í Sjálfstæðisflokknum rýfur þögnina – „Á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum“