fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Þurfti að fara í hart til að fá bætur vegna innbrots – Tryggingafélagið vildi ekki samþykkja niðurstöðu lögreglu

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum hefur komist að þeirri niðurstöðu að kona eigi rétt á bótum úr fjölskyldutryggingu vegna innbrots á heimili hennar. Vildi tryggingafélagið ekki borga og sagði að ekki hefðu verið færðar sönnur á að nokkurt innbrot hefði átt sér stað en lögregluskýrsla þar sem niðurstaðan var að ummerki hefðu verið um innbrot dugði ekki félaginu.

Tryggingafélagið er ekki nafngreint í úrskurði nefndarinnar.

Í kæru til nefndarinnar sagði konan að brotist hafi verið inn á heimili hennar í ágúst 2025, á meðan hún hafi verið að heiman í nokkra daga og þaðan stolið ýmsum munum. Gluggi í geymslu hafi verið spenntur upp. Þegar hún hafi orðið innbrotsins vör hafi hún kallað strax til lögreglu, sem hafi komið á staðinn og tekið skýrslu af henni og tekið myndir.

Hún hafi tilkynnt atvikið til tryggingafélagsins og krafist greiðslu bóta úr fjölskyldutryggingu vegna innbrotsins. Félagi hafnaði bótaskyldu á þeim forsendum að ekki hafi verið sýnt fram á að innbrot og þjófnaður hefðu átt sér stað líkt og áskilið væri í skilmálum vátryggingarinnar sem forsenda bótaskyldu.

Tjónamatsmenn félagsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki væru sjáanleg ótvíræð merki um innbrot á glugganum. Jafnframt taldi félagið ósannað að þeir munir sem konan krafðist bóta fyrir hafi verið teknir þar sem ekki hafi legið fyrir fullnægjandi gögn um eignarhald, tegund og aldur þeirra muna. Sneri konan sér þá til nefndarinnar.

Innbrot eða ekki innbrot

Til stuðnings kröfu sinni benti konan að að hún hafi strax kallað til lögreglu og í lögregluskýrslu komi fram að þegar lögreglumenn komu á vettvang hafi gluggi sem lá að svefnherbergi verið opinn og skemmdir á glugganum líkt og hann hafi verið spenntur upp. Að auki mætti sjá í skýrslunni ljósmynd af ákomu á glugga þar sem hann hefði verið spenntur upp, ljósmynd af stormjárni gluggans sem fallið hafi af við innbrotið og ummerki í íbúðinni eftir innbrotið. En greinilegt sé af myndinni að búið sé að rústa öllu í því skyni að leita að og stela verðmætum.

Glugginn hafi verið lagfærður tveimur dögum síðar en ótvíræð ummerki um innbrot hafi legið fyrir og það ætti ekki að leggja til grundvallar niðurstöðu matsmanna tryggingafélagsins sem skoðað hafi gluggann tveimur vikum eftir atvikið. Nær væri að leggja til grundvallar mat lögreglumanna sem komu á vettvang enda væru þeir bæði reyndir og þjálfaðir til þess að rannsaka innbrot. Að lokum byggði konan á að hún hafi fært fram viðhlítandi skýringar á eignarhaldi sínu á þeim munum sem hún hafi ekki getað framvísað kaupnótu fyrir.

Tryggingafélagið vildi hins vegar meina að ekki lægju fyrir ótvíræð ummerki um innbrot. Rætt hafi verið við umsjónarmann hússins þar sem konan búi og hann hafi sagt það ekki mögulegt að spenna gluggann upp nema hann væri skilinn eftir opinn. Í skilmálum tryggingarinnar sé kveðið á um að innbrot skuli bætt aðeins ef skýr merki séu um það og að dyr og gluggar hafi verið kyrfilega læst. Í lögregluskýrslunni væri aðeins á einum stað vísað til ummerkja um innbrot. Ef glugginn hefði verið læstur hefði verið ómögulegt að spenna hann upp án þess að valda mun meiri skemmdum en sæjust á myndum í lögregluskýrslu.

Kvittanir

Konan sagði það ekki rétt að minnst væri aðeins á ummerki um innbrot á einum stað í lögregluskýrslunni. Það væri enn fremur ósanngjarnt að tryggingafélagið krefðist þess að hún sannaði tjón sitt með því að framvísa kvittunum fyrir öllu sem hefði verið stolið. Sumir hlutirnir væru í eigu barna hennar og aðra hafi hún ýmist fengið í arf eða að gjöf en hún hafi sent félaginu þær kvittanir sem hún átti til og tekist að afla kvittanna fyrir hluta af öðru því sem stolið var og hún hafði ekki kvittanir yfir.

Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum segir ljóst að lögregla hafi komist að þeirri niðurstöðu að merki hefðu verið um að glugginn hafi verið spenntur upp. Gögn málsins bendi til að umræddur gluggi hafi verið spenntur upp í umrætt sinn en jafnframt að ekki hafi verið unnt að spenna hann upp nema hann hafi verið opinn að einhverju marki. Ef glugginn hafi verið alveg læstur þá hafi átt að vera mun meiri ummerki á honum. Konan hafi þar af leiðandi ekki farið eftir varúðarreglu í skilmálum vátryggingarinnar og því sé rétt að skerða bætur til hennar um 1/3 og eigi hún þá á rétt á 2/3 hluta af fullum bótum vegna innbrotsins.

Þar sem konan hafi sýnt fram á tjón sitt að einhverju marki, þótt tryggingafélagið haldi öðru fram, teljist hún hafi sannað tjón sitt og eigi að því leyti rétt á bótum.

Segja má því að konan hafi haft betur, gegn tryggingafélaginu sem neitaði að samþykkja niðurstöðu lögreglu um að brotist hafi verið inn á heimili hennar, að hluta til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregluaðgerðin á Akureyri: Íbúi í götunni segir lögregluútköll á staðinn vera regluleg

Lögregluaðgerðin á Akureyri: Íbúi í götunni segir lögregluútköll á staðinn vera regluleg
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Móðir 14 ára stúlku sem arabískir menn eru sagðir hafa táldregið tjáir sig – Áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína

Móðir 14 ára stúlku sem arabískir menn eru sagðir hafa táldregið tjáir sig – Áhyggjufull þegar hún náði ekki sambandi við dóttur sína
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kókaín í vötnum hefur áhrif á hegðun villtra laxa

Kókaín í vötnum hefur áhrif á hegðun villtra laxa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar
Fréttir
Í gær

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs
Fréttir
Í gær

Umfangsmikil lögregluaðgerð á Akureyri

Umfangsmikil lögregluaðgerð á Akureyri
Fréttir
Í gær

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum
Fréttir
Í gær

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“