

Bandarískur maður hefur verið dæmdur í nærri hundrað ára fangelsi fyrir stafræna misnotkun barna og kynferðilega misnotkun á hundi. Maðurinn sem er aðeins 25 ára gamall mun líklega aldrei stíga út fyrir veggi fangelsis aftur.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Hinn 25 ára gamli Brandon Kilpatrick hlaut nýlega 96 ára fangelsisdóm í fylkingu Arkansas í Bandaríkjunum fyrir stafræn kynferðisbrot gegn börnum, vörslu og dreifingu barnakláms og misnotkunar á hundi.
Kilpatrick hafði notað samskiptaforrit sem kallast Kik til þess að fremja myrkraverk sín en vefstjórar hjá Kik tóku eftir að eitthvað vafasamt var í gangi og létu lögregluna vita. Þegar lögregla hóf rannsókn málinu kom í ljós að Kilpatrick átti 187 ljósmyndir eða myndbönd af kynferðislegri misnotkun barna. Hafði hann einnig dreift efninu til annarra barnaníðinga.
En málið átti eftir að vinda upp á sig því að rannsóknin leiddi í ljós að Kilpatrick hafði ekki aðeins horft á aðra misnota börn, hann hafði gert það sjálfur líka. Það er í gegnum netið, á samfélagsmiðlum á borð við Instagram. Það er að hann hafi fengið ungar stúlkur til þess að senda honum nektarmyndir og svo fengið þær til þess að taka upp kynferðisleg myndbönd undir hótun um að hann myndi senda myndirnar á aðra.
„Ég treysti þér meira en nokkrum öðrum í lífi mínu. Ef þeir hefðu ekki náð þér þá hefði líf mitt endað,“ sagði ónefnd stúlka sem Kilpatrick misnotaði. En brotin áttu sér stað frá maí til september árið 2024. „Þú ert viðbjóðslegur. Þér er ekki viðbjargandi.“
Málið átti enn þá eftir að vinda upp á sig því að Kilpatrick hafði ekki aðeins beint sínum sjúku hvötum að börnum heldur einnig mállausum skepnum. Það er bolabítnum sínum sem hann var fundinn sekur um að hafa misnotað í að minnsta kosti þrjú skipti kynferðislega.
Kilpatrick játaði brot sín í samningum við saksóknara. Engu að síður hlaut hann 96 ára fangelsisdóm. Þar að auki fer hann á opinberan lista yfir kynferðisbrotamenn, má ekki hafa nein samskipti við fórnarlömb sín, má ekki umgangast neinn undir 21 árs aldri og má ekki eiga hunda í framtíðinni.
Jeff Phillips, saksóknari í málinu, sagði að rannsóknin hefði tekið mjög á lögreglumennina sem að henni komu. Þetta hefði fengið mjög á þá andlega.
„Við getum ekki afséð þessa hluti. Þetta fylgir okkur heim,“ sagði hann.