

Einstaklingar og forvarnarsamtök hafa sent erindi á lífeyrissjóði þar sem þess er krafist að þeir selji hlutabréf sín í Högum. Í bréfum sem send voru um helgina er bent á nýlegan dóm yfir Smáríkinu sem hafi líkt og Hagar brotið gegn einkaleyfi ÁTVR á smásölu áfengis.
Lífeyrissjóðirnir eru langstærstu eigendurnir í Högum, með um 80 prósent eignarhlut. Stærstu eigendurnir eru Gildi, LIVE og LSR sem eiga yfir 10 prósent hver og Brú, Kaldbakur og Birta sem eiga yfir 5 prósent hver.
Eins og DV greindi frá fyrir tæpum tveimur árum síðan gerðu forvarnarsamtök athugasemdir við að Hagar hygðust og hæfu síðan netsölu áfengis í gegnum netverslunina Veigar á vegum Hagkaupa. Bæði vegna þess að um lögbrot væri að ræða og að sala áfengis stæðist ekki lýðheilsumarkmið sem sjóðirnir hefðu sett sér.
Sumir lífeyrissjóðirnir brugðust við, hörmuðu netsöluna eða kröfðu Haga um svör. Þar á meðal Gildi, Brú, Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn.
Núna um helgina voru aftur send bréf á lífeyrissjóðina. Það er einstaka meðlimir forvarnarsamtakanna sendu þau á sína lífeyrissjóði og kröfðu þau um aðgerðir í ljósi nýfallins dóms yfir Smáríkinu.
Vilhjálmur Forberg Ólafsson, framkvæmdastjóri Smáríkisins, var í upphafi mánaðar í Héraðsdómi Reykjaness sakfelldur fyrir sölu á hvítvínsbelju í maí í fyrra. Það er að Smáríkið hefði brotið á einkaleyfi ÁTVR til áfengissölu.
Bréfin eru öll á sama veg. Það er að bregðast þurfi við ólögmætri sölu áfengis með sölu á hlutabréfum ef stjórn Haga stöðvi ekki sölu áfengis samstundis.
„Ekki var orðið við erindi mínu 2024, etv. vegna þess að Hagar héldu því fram að hún væri lögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem þeir höfðu undir höndum en hafa ekki veitt aðgang að,“ er meðal þess sem segir í einu bréfinu sem sent var til Gildis.
Vísað er til lýðheilsustefnu og yfirlýst markmið sjóða um samfélagslega ábyrgð. Einnig yfirlýst gildi og reglur Haga þar sem sagt er að lögð sé rík áhersla á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Nái þessar siðareglur til allra birgja Haga. „Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga,“ segir í reglunum.
„Að gefnu tilefni mótmæli ég því að Gildi lífeyrissjóður eigi í fyrirtæki sem stundar ólöglega starfsemi af þessu tagi og sem félagi í íslenska samfélaginu mótmæli ég því að grafið sé undan þeirri heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu sem samþykkt hefur verið á Alþingi og allar helstu heilbrigðisstéttir landsins og forvarnarsamtök hafa fylkt sér um,” segir í einu bréfinu.