fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Pressan
Föstudaginn 17. apríl 2026 12:30

Pembroke-kastali er sögufrægur. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hellir undir Pembroke-kastala í Wales gæti reynst ein merkilegasta fornleifauppgötvun síðari ára og varpað nýju ljósi á forsögu Bretlands, að mati vísindamanna.

Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallar um þetta.

Rannsóknir í svokölluðum Wogan-helli hafa þegar leitt í ljós sjaldgæf ummerki um bæði frumstætt mannlíf og dýralíf.

Þar á meðal hafa fundist bein úr flóðhesti sem lifði á svæðinu fyrir um 120.000 árum, auk leifa af mammútum og loðnashyrningum.

Þótt uppgröftur hafi hingað til verið takmarkaður hafa niðurstöðurnar vakið töluverða athygli. Nú stendur til að hefja umfangsmikið, fimm ára rannsóknarverkefni undir stjórn vísindamanna við University of Aberdeen.

Að sögn fornleifafræðingsins Rob Dinnis, sem leiðir verkefnið, er um einstakan stað að ræða. „Það er enginn annar staður eins og þessi í Bretlandi – þetta er uppgötvun sem gerist aðeins einu sinni á ævinni,“ segir hann við BBC.

Hellirinn, sem er um 23 metra langur og allt að 10 metra hár, er aðgengilegur með hringstiga úr kastalanum. Lengst af var talið að lítið væri eftir af fornleifum á svæðinu, en rannsóknir á árunum 2021 til 2024 breyttu þeirri mynd. Fundust meðal annars steinverkfæri og bein sem þykja hafa varðveist óvenju vel.

Vísindamenn telja að hellirinn geti veitt sjaldgæfa innsýn í líf fyrstu nútímamanna í Bretlandi, sem og mögulega enn eldri búsetu Neanderdalsmanna. Þá gætu fundirnir einnig varpað ljósi á áhrif loftslagsbreytinga á mannlíf, þar sem leifarnar spanna bæði ísaldir og hlýrri skeið í mannkynssögunni.

Rannsóknarverkefnið er unnið í samstarfi við Pembroke Castle Trust, sem hyggst tryggja að það sem finnst á staðnum verði vel varðveitt.

Pembroke-kastali er sögufrægur en þar fæddist meðal annars Henry VII sem var Englandskonungur á árunum 1485 til 1509.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“