fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 13. apríl 2026 19:30

Börkur Reykjalín Gunnarsson. Mynd: YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Börkur Reykjalín Brynjarsson segir að það hafi verið langur aðdragandi að því að hann missti nánast lífsviljann. Í viðtali í hlaðvarpinu Karlmennskan lýsir hann reynslu sinni af spilafíkn, kulnun og þunglyndi, og því hvernig skömmin varð að þungbærri byrði.

„Þetta var þessi skömm, þessi sektarkennd. Það að hafa gert þetta og gert sjálfum mér þetta og mínum nánustu,“ segir Börkur og bætir við að hann hafi lengi reynt að fela vandann og líðan sína. Hann lýsir því hvernig „daytrading“ þróaðist yfir í fíkn þar sem eltingaleikur við tap og von um að vinna það upp tók yfir.

Leitaði sér hjálpar á erfiðasta tímanum

Þegar ástandið versnaði leitaði Börkur loks til Píeta samtakanna. Hann segir það hafa verið erfitt skref.

„Ég meira að segja guggnaði á fyrsta símtalinu. Hringdi og skellti á. Hálfri mínútu seinna var hringt til baka,“ segir hann og lýsir því sem dýrmætri reynslu að fá að tala við einhvern sem hlustar án fordóma.

Hann bendir á að margir karlar eigi erfitt með að leita sér hjálpar og að þögnin geti verið hættuleg. „Við erum ekkert að hringja í annað fólk til þess að segja frá hvernig okkur líður,“ segir hann og tengir það við karlmennskuhugmyndir þar sem sjálfstæði og þrautseigja eru í forgrunni. „Ég byggði húsið mitt sjálfur og geri við bílinn minn. Sé um allt sjálfur.“

Heldur áfram að berjast og hjálpa öðrum

Þrátt fyrir erfiða reynslu ætlar Börkur að halda áfram að láta gott af sér leiða. Um helgina stóð hann fyrir hlaupi til styrktar Píeta samtökunum í sjötta sinn og segir mikilvægt að vekja athygli á starfi þeirra.

„Þú þarft að muna að þú ert ekki einn,“ segir hann og leggur áherslu á að fólk geri sér grein fyrir áhrifum gjörða sinna á aðra, sérstaklega fjölskyldu og vini. Hann viðurkennir að hann sé enn að vinna úr sínum málum, en telur að opinská umræða sé lykilatriði. „Við erum ekkert að minnka karlmennskuna okkar með því að tala um hlutina. Við eigum að gera það.

Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig.“

„Besta lækningin er að tala við einhvern“

Börkur hvetur aðra sem standa í svipuðum sporum og hann gerði til að leita sér hjálpar, jafnvel þótt það sé ekki við nánustu aðstandendur.

„Finndu þér einhvern sem þú getur talað við án þess að vera dæmdur,“ segir hann. „Þar geturðu tekið tappann úr og byrjað að vinna í þér.“

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri