
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi menntamálaráðherra, hefur sagt sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Í yfirlýsingu til fjölmiðla segist hann ekki tjá sig frekar um þessa ákvörðun en tekur fram að hann styðji ríkisstjórnina heils hugar og muni gegna áfram þingmennsku utan flokka.
Hér er yfirlýsingin í heild:
„Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun.
Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka.
Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka.
Ástæða þess að ég segi skilið við Flokk fólksins á þessum tímapunkti er trúnaðarbrestur sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig frekar um þessa ákvörðun.
Ég vil þakka félögum mínum í Flokki fólksins fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Saman höfum við náð miklum árangri í veigamiklum baráttumálum og þar vil ég ekki síst nefna kjör öryrkja og aldraðra og áherslur okkar í velferðarmálum. Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga.“