fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Eyjan
Mánudaginn 13. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að stórsigur Tisza flokks Péters Magyar á Fidesz flokki Viktors Orbán í þingkosningunum í Ungverjalandi um helgina sé mikið áfall fyrir trumpíska öfgaflokka um víða veröld. Orbán átti vísan stuðning bæði Pútíns Rússlandsforseta og Trumps Bandaríkjaforseta. Trump sendi meira að segja varaforseta sinn, J.D. Vance til Búdapest til að lýsa sérstökum stuðningi við Orbán og láta taka af sér mynd með honum. Það fór nú eins og það fór.

Þess má geta að 20. apríl 2025 fór Vance í Vatíkanið að hitta Francis páfa. Degi síðar var páfinn allur. Af þessu má draga þá ályktun að heimsóknir frá Vance færi mönnum hvorki lán né lukku.

Orðið á götunni er að afgerandi ósigur Orbáns sé mikið áfall fyrir trumpista um allan heim og merki um að um alla Evrópu sé stuðningur við þá byrjaður að fjara út. Guð láti gott á vita.

Sigur Magyars var svo stór að allt lítur út fyrir að hann ráði yfir þingstyrk til að vinda ofan af stjórnarskrárbreytingum sem Orbán á 16 ára ferli hefur keyrt í gegn til að takmarka lýðréttindi, mismuna minnihlutahópum og ógna lýðræðinu í Ungverjalandi. Stjórnartíð hans hefur einkennst af spillingu.

Þá hefur sigurinn þau áhrif að nú getur ESB aukið stuðning sinn við Úkraínu, en Orbán hefur, einn leiðtoga innan ESB, staðið í vegi fyrir slíku af alkunnum undirlægjuhætti gagnvart Pútín.

Magyar lýsti því yfir eftir að kosningasigurinn varð ljós að Ungverjaland verði nú á ný sterkur bandamaður innan ESB og NATO

Orðið á götunni er að öfgahægripeðin á Íslandi hafi nú misst bandamann sinn rétt eins og þeir Trump og Pútín og óneitanlega sé útlitið dekkra nú fyrir lýðskrumara og hægriöfgamenn en var fyrir helgi.

Orðið á götunni er að forvitnilegt verði að fylgjast með gengi hægriöfgamanna hér á landi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Kosningabarátta Miðflokksins í Reykjavík þykir til að mynda ekki hafa farið björgulega af stað þar sem oddviti flokksins birti myndskeið af sjálfum sér að leita að bílastæði í göngugötu. Vandræðalegt tal hans um bílastæðaskort í göngugötunni heyrðist svo vart fyrir hávaðanum í nagladekkjunum á Teslunni hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir